Page 1 of 1

Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 29 Jun 2012 18:01
by iceboy
Þar sem þessu spjallborði er vel stjórnað og ábendingar og óskir eru teknar til greina þá langar mg að athuga hvort Maggragg er tilbúinn að setja inn einn nýjan flokk.

Má hann heita hvað sem er fyrir mér en mér datt i hug að þar væri hægt að koma með ábendinger ef menn hafa dottið inn á einhverja sniðuga hluti ,tengt þessu áhugamáli okkar, sem er mun ódýrara í einni verslun en annari..... semsagt segja frá góðum dílum ;)

Með þessu getum við hjálpað hver öðrum að spara smá.

Ástæðan fyrir þessari ósk minni er að ég var að leita mér að ákveðnum hlut ( ég skal skella því inn í þennan þráð ef hann verður stofnaðu) og það kom mér á óvart hversu mikið er hægt að spara með því að fara í aðra verslun, svo í staðinn fyrir að við séum allir að leita eftir besta verðinu hver á sínum vegum þá kemur ákveðinn grunnur hérna um hvar hægt er að sinna hluti, jafnvel verða þá nefndar verslanir sem manni hefur ekki dottið í hug að skoða.

Þetta er allavega hugmynd 8-)

Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 29 Jun 2012 18:22
by maggragg
Óska eftir góðu nafni á flokkin :)

Re: Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 29 Jun 2012 18:41
by TotiOla
Bara smá brainstorm:
Hrós dagsins
Kostakjör
Meðmæli
Umsögn

Mætti þá kannski segja þar frá góðri þjónustu? T.d. vefverslunum sem senda til landsins, eru með góðar vörur, "djúsí" tilboð og eru þægilegar í samskiptum.

Re: Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 29 Jun 2012 19:14
by Aflabrestur
Sælir.
Lýst vel á þetta.
Hvað með: Verðvaktin og vinsamlegar verslanir??

Re: Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 29 Jun 2012 22:21
by iceboy
Er þetta ekki bara fint nafn hjá Aflabresti. Verðvaktin og vinsamlegar verslanir mér líst bara vel á það :P

Re: Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 30 Jun 2012 16:30
by maggragg
Ætla að skoða þetta eftir helgi. Er að reyna að átta mig á í hvaða yfirflokk þetta ætti að fara og sjá hvort að hægt að er að sameina flokkinn með einhverjum öðrum eða hafa hann yfirgripsmikinn. Maður verður alltaf að finna þessa fínu línu milli þess að hafa ekki of mikið af flokkum en samt nógu marga til að allt rúmist einhversstaðar. Nafnið kemur vel út hjá Jóni.

Re: Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 30 Jun 2012 18:44
by iceboy
Mér líst mjög vel á það . Takk kærlega

Re: Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 01 Jul 2012 01:25
by atlimann
Þegar ég verslaði mikið á Cabelas síðunni hér í den, þá var þar dálkur sem hét " Bargain Cave"
Gæti verið túlkað á íslensku sem "Tilboðs Hellirinn"

Re: Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 01 Jul 2012 12:04
by Veiðimeistarinn
Þegar ég fór til Miniappolis í fyrrahaust og kom í Cabelas sá ég einmitt " Bargain Cave", þetta er sér salur við hliðina á skódeildinni þarna í Cabelas í Miniappolis.
Þarna inni var fullt af vörum sem var eitthvað gallað, stundum bara umbúðir eða einhverjir smágallar, til dæmis keypti ég mér þarna í hellinum ábreiðu á framsætið í jeppanum mínum á örfáa $ en það vantaði bar eina teygju á yfirbreiðsluna sem engu máli skipti þegar þetta var sett á sætið, hins vegar keypti ég aðra eins frammi í búð á hitt sætið svo þetta var bara hálfur skaði hjá þeim. (en kannski var hann alger hjá mér) :lol:

Já það er þetta með nafn á flokkin af af verður ,,Verðvaktin og vinsamlegar verslanir" er svolítið langt og óþjált vegna þess að það er ofstuðlað.
,,Kostakjör" er stutt og lagott lýst betur á það að mörgu leiti.
Gott verð, gæðaverslun. Sameinar þetta að einhverju leiti, en það er kannski best að vera ekki að koma með fleiri tillögur, það einungis eykur valkvíðann :D
Ég held að það sé best að þetta komi inn á yfirflokkinn Sölutorgið ef af þessu verður 8-)

Re: Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 01 Jul 2012 13:47
by Gunnar Óli
Góð kaup-gott að versla

annars eru þetta allt góðar hugmyndir sem hér hafa komið fram...
og hugmyndin af slíkum flokk bráðsniðug.

kv Gunnar Óli

Re: Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 01 Jul 2012 22:06
by maggragg
Setti inn flokk undir sölutorgið en nafnið og lýsingin er ennþá opið fyrir breytingum

http://spjall.skyttur.is/kostakjor/

Re: Ósk eða ábending til Maggragg

Posted: 01 Jul 2012 23:13
by Veiðimeistarinn
Magnús, þú ert langflottastur, heldur þessu spjalli í stöðugri þróun með þarfir spjallverjanna að leiðarljósi og eftir þeirra ábendingum og oft sérvisku :D