Page 1 of 1

Nýjir Cabela's veiðiskór uppháir til sölu

Posted: 03 Jul 2012 09:23
by Gunson
Er að selja CABELA'S uppháa veiði- og útivistarskó í stærð 43-44. Nýir voru að koma í hús eitt par eftir og eru því til sölu. Verð 15.000 brúnt leður og gore tex, reimaðir uppháir með góðum sóla.Flottir í veiðina í sumar og haust. Mynd af skónum má sjá ef flett er niður póstana. endilega hafið samband ef áhugi er fyrir hendi. Sigurður sími 8969878 eða svar í tölvupósti.

Re: Nýjir Cabela's veiðiskór uppháir til sölu

Posted: 03 Jul 2012 10:02
by TotiOla
Hvernig eru þeir í stærð? Þ.e.a.s. hvaða stærð notar þú venjulega?

Eins mættir þú láta fylgja ef þeir eru sérstaklega þröngir eða víðir á ákveðnum stöðum. T.d. yfir rist, ökkla eða um tær.

Re: Nýjir Cabela's veiðiskór uppháir til sölu

Posted: 03 Jul 2012 19:54
by Veiðimeistarinn
Sæll nafni.
Velkominn hérna inn á spjallið. Ég ætla samt að vera með sömu leiðindin við þig og aðra sem koma hėr inn á spjallið varðandi að koma fram undir nafni.
Eins og þú sérð eru flestir fram hėr undir fullu nafni nota svokallaðar fastar kveðjur.
Sérstaklega finnst mėr nauðsinlegt að menn komi fram undir fullu nafni þegar menn eru að selja eitthvað hérna, það tryggir að menn eru síður að selja illa fengna hluti hérna.
Nafni það er ekki vegna þess að ég telji að þú presturinn sért að selja eitthvað illa fengið hérna en ég er nú einu sinni þannig gerður að ég hef aldrei gert greinamun á Jóni og séra Jóni.
Annars get ėg staðfest að þetta eru ágætis skór, voru bara aðeins of litlir á mig annars hefði ég snnilega keypt þá.
Ég nota númer 44 alla að jafnan, svo þessir skór munu vera nálægt þvíað passa á þá sem jafnan nota númer 43.
Þeir voru ekki þröngir neinsstaðar svo sem yfir ristina þegar ég smokraði mér í þá, bara aðeins of litlir eins og ég sagði áðan, þeir eru ágætlega lagaðir.
Nafni, átt þú ekki góða mynd af skónum til að setja hérna inn?

Re: Nýjir Cabela's veiðiskór uppháir til sölu

Posted: 03 Jul 2012 20:39
by Gunson
Sæll nafni minn og takk fyrir brýninguna. Ekki vil ég sigla undir fölsku flaggi, en mér sýnist menn nota svona einhver tenginöfn, Gunson er mitt kenninafn. Ja varðandi skóna er ég spældur að hafa keypt þá rúmlega (of stóra) á mig,en vil að einhver annar geti notið þeirra. Er ekki að bjóða neitt stolið. Þú hefðir sómt þér veil í þeim. Ég er bara með klaufaskap að stja inn mynd, en á nokkrar myndir af skónum, einmitt ef einhver hefði áhuga. Þeir passa örugglega á einhvern sem notar 44 -45 og eru einangraðir og hlýjir en um leið þægilegir. Kannski einhver geti notað þá á hreindýrið og í gæsina??? Verðið er bara það sem þeir kostuðu mig, er ekki að verðleggja axarskaptið að hafa þá aðeins rúmlega stóra. Maður áttar sig bara ekki á skóstærðum USA EUR og IS. En ef einhver haefur áhuga þá eru til myndir sem ég reyni að setja inn. En svo er hægt að hringja í mig 8969878. Kveðja Sigurður Rúnar (Gunson).

Re: Nýjir Cabela's veiðiskór uppháir til sölu

Posted: 03 Jul 2012 23:15
by Veiðimeistarinn
Já nafni vona að þér gangi vel að selja skóna, þetta eru allt of góðir skór til að verða bara skápamatur!
Það þarf að minnka myndina til að hún gangi hérna inn, breiddin mest 800, hæðin mest 600, og stærðin mest 300 kilobite.
Síðan er bara að tengja hana við eins og verið sé að tengja viðhengi við tölvupóst, fara í bæta við viðhengi og finna myndina á tölvunni hjá þér.
Einfalt! :)

Re: Nýjir Cabela's veiðiskór uppháir til sölu

Posted: 04 Jul 2012 10:34
by TotiOla
Sælir

Tek undir undirskriftar-beiðnina. Læt fylgja mynd sem ég fékk frá honum Sigurði af skónum.

Re: Nýjir Cabela's veiðiskór uppháir til sölu

Posted: 14 Jul 2012 13:12
by Gunson
Til upplýsingar ,spjallverjar, þá eru Cabela's veiðiskórnir seldir.