Page 1 of 1

Neck sizing die? .308

Posted: 07 Jul 2012 14:50
by heimirsh
Komið sæl

Ég er nýbyrjaður að hlaða í .308, hef hlaðið í .243 hingað til en ákvað nú að prófa neck size, hvernig hefur það verið að koma út hjá mönnum? það er að neck sizea bara?
Eruð þið að smyrja hylkin? hvernig stillið þið dæjann í pressuna?
væri gaman að fá svör við þessu eða leiðbeiningar varðandi neck sizerinn...mér finnst hann vera að slípa full mikið hálsinn að utan, svona slípiför allann hringinn.

Einnig ef einhver veit um góða hleðslu fyrir 155 scenar með n-140 púðri má sá hinn sami endilega deila henni, COL og slíkt.

kveðja

Heimir Haraldsson

Re: Neck sizing die? .308

Posted: 07 Jul 2012 17:17
by gylfisig
hvernig dia ertu med? Lyman kannski? Þu àtt ekki ad þurfa ad smyrja hàlsana, nema kannski sàralitid. Àgaett ad renna bursta inn i þà. Þu stillir diann eins og Full dia..laetur hann hèrumbil snerta shell holderinn.

Re: Neck sizing die? .308

Posted: 07 Jul 2012 19:01
by heimirsh
Jú ég er með Lyman, ég hef þá verið að gera þetta nokkuð rétt...hefur þér þótt þetta muna einhverju í nákvæmni eða er þetta bara til að auðvelda ferlið?

Takk fyrir svarið

kv
Heimir S Haraldsson

Re: Neck sizing die? .308

Posted: 07 Jul 2012 23:33
by Benni
Með Lyman dæja þarftu að smyrja hálsinn að innan allavega, ekki mikið að utan en þessi slípiför koma því dærinn er mjög grófur að innan.

Það sem þú græðir aðalega er meiri ending á hylkjum og auðveldara ferli svona helst, jú gætu verið eitthvað nákvæmari en mér finnst Lyman dæjar þrengja hálsinn alltof mikið.