Page 1 of 1
Ný 6mm Berger VLD veiðikúla væntanleg
Posted: 22 Aug 2010 18:05
by maggragg
Berger hefur tilkynnt að ný kúla er væntaleg. Það er 6mm (.243) 87 graina VLD kúla. Kúlan er hönnuð til að virka í rifflum með 1/10" twisti og ætti því að vera skemmtileg viðbót fyrir þann fjölda veiðimanna sem eiga .243 riffla. Berger hefur ekki gefið upp hvaða BC. stuðul kúlan mun hafa en væntanlega verður hann þokkalega hár ef ég þekki Berger kúlur rétt.
Kúlan er of lítil á hreindýr þar sem lágmarkið er 100 grain. En þessi kúla gæti nýst á varg eins og ref. Ætti kúlan að henta vel fyrir lengri færi og þar sem skotið er í vindi en erfitt er að spá um það meðan ekki er vitað meira um kúluna. Kúlan er veiðikúla miðað við það sem þeir segja hjá Berger. Þessar upplýsingar eru einungis komnar á
facebook síðu Berger.
Þannig að þeir sem hafa áhuga geta örugglega rætt við þá í
skyttan.is en þeir eru með umboðið fyrir
Berger.
Re: Ný 6mm Berger VLD veiðikúla væntanleg
Posted: 24 Aug 2010 09:50
by maggragg
Ég setti in spurningu á
www.longrangehunting.com í von um að einhver vissi um þessa kúlu og fekk svar frá Bryan Litz, sjálfum hönnuði kúlunnar:
"These bullets will be made and available within the next few weeks.
Differences from the 90/95 grain bullet is mainly that this 87 grain bullet is shorter so that it stabilizes in the very common 1:10" twist. It's not a super high BC bullet, but we needed an option for this very common 6mm twist rate. If you have a 1:9" or 1:8" twist 6mm, there's little reason to consider this 87 grain bullet because those faster twists will stabilize much higher BC (and higher energy) bullets (95, 105, and 115 grain VLD's).
-Bryan
__________________
Bryan Litz
Ballistician
Berger Bullets
Applied Ballistics, LLC
"
Semsagt þessi kúla er hönnuð fyrir þetta algenga 1/10 twist eins og er í flestum .243 rifflum á Íslandi. Hún semsagt stabiliserar sig vel þar. Væntanlega verður þetta mjög góð og nákvæm veiðikúla.
Ný 6mm Berger VLD veiðikúla kominn
Posted: 30 Apr 2011 23:41
by maggragg

Þessi kúla er núna kominn á markaðinn úti og lofa mjög góðu. Hefur hún G1 BC uppá .412 og G7 BC uppá .211 en þetta eru prófaðar tölur. Þessi kúla er sérstaklega gerð fyrir verksmiðjuframleidda veiðiriffla í .243 kaliberum til að "stabilisera" sig en þyngri kúlurnar frá þeim eins og 95 grain, 105 grain og 115 grain voru of þungar/langar til að henta þessum hefðbundnu rifflum almennilega.
Þessi kúla verður aðeins framleidd með þunnri kápu og fellur því í veiðikúluflokkin hjá Berger enda hugsuð sem veiðikúla.
Ummæli Bryan Litz:
For the new 87gr VLD, the G1 BC is .412, and the G7 BC is .211. Prior to this bullet, our lightest Hunting VLD was the 95 grainer, which requires a 1:9″ twist. This left many shooters with no option from Berger for a 6mm hunting bullet because the fastest common twist for many 6mm factory barrels is 1:10″. The 87 grain VLD was designed specifically to fill the gap, and it squeezes the most performance possible out of the common 1:10″ twist barrel. As with all Berger Hunting VLDs, this is the standard J4 (thin) jacket. There is not a Target (thick-jacket) version planned for this design.
Heimild:
http://bulletin.accurateshooter.com/201 ... t-barrels/
Re: Ný 6mm Berger VLD veiðikúla
Posted: 04 Mar 2012 14:24
by maggragg
Hefur einhver prófað þessa kúlu? Sýnist að
skyttan.is sé með hana í sölu.
Re: Ný 6mm Berger VLD veiðikúla væntanleg
Posted: 04 Mar 2012 17:02
by Gisminn
Nei ætlaði að prófa hana áður en ég seldi 243 minn en hún var uppseld og kemur ekki aftur fyrr en í vor