Page 1 of 1

Hreintarfurinn fallinn.

Posted: 20 Jul 2012 09:54
by Spíri
Jæja félagar, þá er maður kominn niður eftir skemmtilega veiðiferð austur. Skaut hreintarf í Hornbrynju og var færið 90 metrar sem einhverjum finnst nú kanski ekki mikið afrek miðað umræður á öðrum ónefndum spjallvef :lol: Sannkölluð veiðimennska þar sem að hjörðin var elt í klukkutíma oft á harða hlaupum án þess að þau yrðu vör við okkur þar sem að rétta dýrið gaf ekki færi á sér fyrr.
Reimar Ásgeirsson snillingur leiðsagði mér og hefur hann sannað fyrir mér í þeim tveim skiftum sem ég hef farið með honum að hann er í hæsta klassa sem leiðsögumaður.
Riffillinn sem ég notaði í verkið (og tók prófið á) Tikka 6,5x55, kúla Nosler bst.120grs. og var hann skotið aftan við eyrað, þannig að engar kjötskemmdir eru á skrokknum sem vigtaði 92kg, eftir fláningu.

Re: Hreintarfurinn fallinn.

Posted: 20 Jul 2012 10:15
by iceboy
Til hamingju með dýrið.
Ég ætlaði að fara a veiðar í þessari viku en vegna óviðráðanlegra orsaka þá var þeim frestað um mánuð

Re: Hreintarfurinn fallinn.

Posted: 20 Jul 2012 10:28
by Veiðimeistarinn
Flottur tarfur, til hamingju :D
Já það fer enginn í fötin hans Reimars, hann er stéttinni til sóma :)

Re: Hreintarfurinn fallinn.

Posted: 20 Jul 2012 10:51
by TotiOla
Til hamingju með tarfinn Þórður!
3 vikur í minn tarf :D Svona myndir gera biðina ekki auðveldari!

Re: Hreintarfurinn fallinn.

Posted: 20 Jul 2012 11:24
by Tf-Óli
Mér bauðst að fara sem gordrengur í þessa ferð en komst ekki. Naga mig til blóðs í handabökin yfir því að hafa ekki komist :)
Mig grunar að þetta hafi verið alvöru.

Til hamingju félagi Þórður og nú þurfum við að gera við rebbakofann áður en sumarfríið klárast.

Re: Hreintarfurinn fallinn.

Posted: 20 Jul 2012 17:19
by gylfisig
Susss sussusss...þa er nu lágmark að hafa færið amk 500 m. ef þetta á að kallast veiðimennska :D

Flottur !