Page 1 of 1
Drag-dúkur
Posted: 20 Jul 2012 10:54
by TotiOla
Sælir
Getur einhver leiðbeint mér með það hvað sé best í þeim efnum? Allar ábendingar vel þegnar.
Veit svo sem ekki hvort það á eftir að koma að notum en ég er að fara á svæði 4 í fyrsta skipti

og skilst að það sé erfitt að komast yfir það svæði á vélknúnum ökutækjum.
Re: Drag-dúkur
Posted: 22 Jul 2012 20:02
by E.Har
Var ekki Málmtækni með svoleiððis annars má notast við margt eða sleppa því

Hver fer með þig?
Re: Drag-dúkur
Posted: 23 Jul 2012 00:18
by Stebbi Sniper
Ef þú ert með Tudda þá hefur reynst mér ágætlega að taka hann í tvennt og hafa e-h með mér til að halda á hinum helmingnum! Þá er oft gott að taka bringubeinið (rifjahylkið) úr frampartinum og þá verður þetta eins og að fara í jakka! Afturparturinn ætti að leggjast nokkuð vel á herðarnar!
Ef þú ert með belju þá svipparu henni bara upp á herðarnar og heldur á henni heilli!
Re: Drag-dúkur
Posted: 23 Jul 2012 07:13
by Gunson
Sæll Toti Ola. ég á sk hreindýramottu, úr stinnu plasti og með götum til að binda dýrið á. á svæði 4 er víða mjög bratt og grýtt, en kannski getur þú notað slíka mottu. Þú getur fengið mína, en ég er í Neskaupstað, ég varð að hluta dýrið sundur og bera það upp frá fellistaðnum. Notaði stóra bakpoka. Hafðu samband ef þú vilt skoða málið. Kveðja Gunson
Re: Drag-dúkur
Posted: 23 Jul 2012 09:26
by TotiOla
E.Har wrote:Var ekki Málmtækni með svoleiððis annars má notast við margt eða sleppa því

Hver fer með þig?
Sæll Einar
Helgi Jensson fer með mig að öllu óbreyttu. Ég hef samband við Málmtækni og sé hvað þeir eiga. Takk fyrir ábendinguna
Stebbi Sniper wrote:Ef þú ert með Tudda þá hefur reynst mér ágætlega að taka hann í tvennt og hafa e-h með mér til að halda á hinum helmingnum! Þá er oft gott að taka bringubeinið (rifjahylkið) úr frampartinum og þá verður þetta eins og að fara í jakka! Afturparturinn ætti að leggjast nokkuð vel á herðarnar!
Ef þú ert með belju þá svipparu henni bara upp á herðarnar og heldur á henni heilli!
Sæll Stefán
Ég er með Tarf og hef því nokkrar áhyggjur af því hvernig ég á að koma honum til byggða. Auk þess er ég ekki vanur í skurðaðgerðum en fæ vonandi með mér menn sem eru mér vanari í því auk þess sem leiðsögumaðurinn hefur líklega einhverja reynslu af slíku. Takk fyrir leiðbeiningarnar
Gunson wrote:Sæll Toti Ola. ég á sk hreindýramottu, úr stinnu plasti og með götum til að binda dýrið á. á svæði 4 er víða mjög bratt og grýtt, en kannski getur þú notað slíka mottu. Þú getur fengið mína, en ég er í Neskaupstað, ég varð að hluta dýrið sundur og bera það upp frá fellistaðnum. Notaði stóra bakpoka. Hafðu samband ef þú vilt skoða málið. Kveðja Gunson
Sæll Sigurður
Takk fyrir boðið. Ætla aðeins að líta í kringum mig og reyna að fá upplýsingar frá mér vitrari mönnum um það hvort þetta sé eitthvað vit. Verð í bandi ef ég ákveð að versla mér dúk.
Re: Drag-dúkur
Posted: 23 Jul 2012 12:12
by Halldór Nik
Sæll Þórarinn
Ef Málmtækni á ekki til Pólýetýlen plötur þá á Fást þær alveg örugglega!
http://fast.is/?c=webpage&id=56&lid=55&option=links
Re: Drag-dúkur
Posted: 23 Jul 2012 12:17
by TotiOla
Sæll Halldór
Takk fyrir ábendinguna. Ég skoða þetta ef ég fæ ekki tilbúinn dúk

Re: Drag-dúkur
Posted: 24 Jul 2012 07:38
by Veiðimeistarinn
Svona lítur þessi dragdúkur út upprúllaður, sumir kalla þetta líka töfrateppi
