Page 1 of 1

Næsta heimskulega spurning... skotalengd

Posted: 20 Jul 2012 23:42
by iceboy
Nú er ég að prófa mig áfram eins og áður sagði ( ég reikna með að flestir lesi alla þræði :P )

og mig langar að þétta grúppurnar mínar.

Ég er mað kannski allt í lagi veiðigrúppur. ca tommu á 100 metrum, 65 mm við slæm skilyrði á 200.

ég tek það fram þó það skipti kannski ekki máli að ég er búinn að skjóta ca 50 skotum úr þessum riffli, þar með talið skotprófið, svo ég er bara að byrja, en þar sem mig langar alltaf að læra meira þá spyr ég bara strax í staðinn fyrir að reina að finna upp hjóli.

Ég hef farið eftir bókinni með hleðslur og col.
Enn sem komið er finnst mér grúppurnar bestar með léttri hleðslu.

En þá loks kemur spurningin, hversu miklu máli skiptir fjarlægð kúlu frá rillum?

Og hvernig mæli ég það?

Ég reyni að lifa eftir speki sem einn eldri maður segði mér þegar ég vann með honum í Noregi fyrir ca 12 árum síðan en það hljómar ca svona... það er betra að spurja og vera vitlaus í 5 mínútur en að spurja ekki og vera vitlaus allt lífið.

Svo spurningarnar verða fleiri, enda mikil viska hér á vefnum

Re: Næsta heimskulega spurning... skotalengd

Posted: 21 Jul 2012 00:03
by TriCoreBallistics
Þú getur sagað tvær til þrjár rásir ofan í hálsinn á einu þrengdu hylki, setur kúlu í hylkið í mestu mögulegu lengd sem hægt er. Síðan mælir þú lengdina á hylkinu með kúlunni eftir að þú lokar lásnum og opnar hann aftur, varlega helst.

Lengdin segir þér lítið, fikraðu þig fram og aftur með hleðsluna fyrst, síðan að skoða hverju heildarlegndin breytir.

Re: Næsta heimskulega spurning... skotalengd

Posted: 22 Jul 2012 19:47
by E.Har
Það eru ekki til heimskulegar spurningar bara heimskuleg svör.
Lengd fram í rillur hefur einhvað að segja.
Flestir vinna þetta þannig að first koma sér niður á púður, síðan prófa jafnvel hvellhettuu, þegar allt er ákveðið þá lengd frá rillum.

Margir markkallar, vilja setja kúluna alveg fram í rillur. Með sömu hleðslu þá eikur það þrýsting svo þá byrjar maður neðar og vinnur sig aftur upp. :shock:

Sjáfur er ég bara með veiðiriffla og hef notað skotið tómt hylki. Sett í það kúlu og sótað hana yfir kerti.
Set hana frammanlega og skoða, þegar ég sé hvar hún snertir rillur þá færi ég mig bara ögn aftar. Fæ þá stift mál fram í rillur.
Venjulega er ég að nota 1/3 hring á kúlusetjaradianum í viðbót, þannig að þá er ég rétt innan við rillur.
Vil ekki snerta þær þar sem það getur verið bras í veiðiskotum. :-)

Annars eru margir meiri fræðingar hér en ég þetta eru svona mín 2 cent :-) :mrgreen:

Re: Næsta heimskulega spurning... skotalengd

Posted: 22 Jul 2012 20:37
by iceboy
Takk fyrir þetta Einar, þetta ser það sem ég var að óska eftir:-)

Re: Næsta heimskulega spurning... skotalengd

Posted: 23 Jul 2012 00:13
by Stebbi Sniper
Þetta er ágæt leið til þess að setja kúluna rétt...

Hello mæ neim is Tim
http://www.youtube.com/watch?v=Jv-D1mEI514

Einnig er gott að nota mjög fína stálull og pússa kúluna til þess að sjá förin eftir rílurnar á kúluni... Bakka henni svo niður um hálfan millimeter...

Svo eru náttúrulega til allskonar mælitæki til þess að finna þetta eina og Hornady LNL OAL gauge!