Page 1 of 1

Hreinn 2012 SKAUST

Posted: 21 Jul 2012 18:05
by Veiðimeistarinn
Þá eru úrslitin komin á blað í skotmóti SKAUST Hreinn 2012.
http://www.skaust.net/index.php?option= ... &Itemid=60

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Posted: 21 Jul 2012 18:30
by TotiOla
Til hamingju með 3. sætið Sigurður! Helvíti ertu vígalegur svona camo-aður :D Hatturinn toppar alveg outfit-ið.

Ég hef gaman af því hvað SKAUST-menn eru duglegir að halda skemmtileg skotmót.

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Posted: 21 Jul 2012 18:56
by Veiðimeistarinn
Takk fyrir það Þórarinn.
En þetta þriðja sæti var frekar súrt í brotið :?
Ég lenti í miklum hremmingum í fríhendisskotunum á 50 og 100 metrunum, raunar ekki á 50 metrrunum þar fékk ég 10, enn síðan skaut ég fríhendis 100 metra skotinu líka á 50 metra skífuna og það fór naumlega í 9 svo ég fékk bara 9 út úr fríhendisskotunum vegna þess að verra skorið gildir með tvö göt á sömu skífu, tapaði 10 þar með þessu vanhugsaða skoti :(
Síðan gekk þetta vel eins og sést á myndunum hérna fyrir neðan af þeim 7 hreinum sem ég hitti :D
Hleðslan var 60 gr. N560 á bakvið 100 gr. Nosler ballistic tip á cirka 3400 fet per sekund.

Gefin voru 10 stig fyrir skot sem hitti lunga næst hjarta, 8 stig fyrir lunga fjær hjarta,
7 stig fyrir skot sem hitti hjarta og 3 stig fyrir skot sem hæfði dýr það er að segja það sem er á blaðinu.

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Posted: 21 Jul 2012 19:01
by Veiðimeistarinn
Hér koma myndirnar af tveimur síðustu hreinunum.
100 metra hreininum og 50 metra fríhendistvískotna hreininum :shock:

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Posted: 21 Jul 2012 19:25
by TotiOla
Helvíti súrt þetta með fríhendis-skotin :( En maður lærir víst á mistökunum og þú tekur bara næsta mót með trompi.

Takk fyrir að deila myndunum með okkur. Maður sér að þetta eru allt flott skot þrátt fyrir þennan eina flyer á 439 metrum.

Segðu mér, var skotið sitjandi eða liggjandi á þessum lengri færum?

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Posted: 21 Jul 2012 19:46
by Veiðimeistarinn
Það var skotið sitjandi af borði á átta seinustu færunum.
Já vindurinn jókst eftir sem lengra kom úteftir og færin lengdust, enda hittu skotin mín á tveimur síðustu færunum ekki, man ekki hvað það næst lengsta var en minnir að það hafi verið rétt innan við 500 metra en lengsta færið var 641 meter en það hittu 4 skyttur á því færi eins og sést á skortöflunni á skaust.net.
Það er nú varla hægt að tala um flyer á 439 metrum, þar má ekkert útaf bera og svona verður að skrifa alfarið á skyttuna, en hreindýrið sem hefði fengið þetta skot hefði verið jafn dautt og öll hin sex sem ég hitti, lungun ná nefninlega svona langt aftur í alvöru dýri og náttúrlega fríhendisdýrið tvískotið alveg STEINDAUTT. (ætli það sé ekki eins og tvíreykt hangiket, hroðalega gott) :lol:

Re: Hreinn 2012 SKAUST

Posted: 22 Jul 2012 11:53
by joivill
Siggi þú ert snillingur
Kv Jóhann Vilhjálmsson