Page 1 of 1
Fótur undir afturskefti
Posted: 22 Jul 2012 10:47
by Veiðimeistarinn
Ég sá þennan fót undir afturskefti í fyrsta skipti nú á Skotkeppni SKAUST Hreinn 2012.
Þér finnst þetta sniðug græja, þessi fótur var pantaður erlendis frá ég spurði ekki hvaðan.
Það er hægt að lekkja hann fram með skeftinu og það er hnappur á honum sem hægt er að ýta á og lengja og stytta í fætinum, handhægt.
Þarna er hann undir Sako 85 Hunter, í caliberinu 2506.
Re: Fótur undir afturskefti
Posted: 22 Jul 2012 13:25
by maggragg
Þetta er sniðug græja en ég fekk mér annað sem ég tel vera mun sniðugra en það er svokallaður tactical rear bag, eða baunapoki. Þetta er sérhannaður poki, fylltur af léttum plastkúlum og eru þrjár misþykkar hliðar á honum. Með pokanum er leikur einn að stilla afturskeptið af og það helst klett stöðugt. Pokinn sjálfur er léttur og meðfærilegur og með strappa til að smeygja lófanum inn í og þannig hafa góða stjórn á honum. Mæli eindregið með því. Ég hef ekki prófað svona fót undir afturskepti en ég held að maður sé nokkuð lengur að stilla riffilinn rétt af heldur en með grjónapúðanum.
https://www.riflesonly.com/pro-shop/tac ... r-bag.html
Re: Fótur undir afturskefti
Posted: 22 Jul 2012 13:33
by Veiðimeistarinn
Magnús, já ég hef séð svona, var það ekki einmitt hjá þér, þetta er snilld.
Re: Fótur undir afturskefti
Posted: 22 Jul 2012 13:39
by maggragg
Jú mikið rétt
Hérna sést hvar ég nota vinstri hendi til að fínstilla riffilinn og svo er hann eins og klettur á skotmarkinu. Finnst þetta vera nokkuð nákvæmara að stilla til en hefðbundinn sandpoki úr leðri. Notast ég ekki lengur við rest þar sem það skilar mér ekki neinu framyfir þetta combó
Ljósmynd: Sigurður Aðalsteinsson
Er reyndar líka með annan fídus sem ég vildi ekki vera án en þar er pod-lock á harris tvífætinum:
Með þessari græju get ég fest fótinn með einu handtaki þannig að riffillinn er í plani, en ég er einnig með dropa á honum. Þetta gerir allt mun stöðugra. Fæst hjá
http://www.skyttan.is
http://www.eshop.is/skyttan/VaraInfo.as ... nCatID=321
Re: Fótur undir afturskefti
Posted: 22 Jul 2012 17:38
by sportvik
Veiðimeistarinn wrote:Ég sá þennan fót undir afturskefti í fyrsta skipti nú á Skotkeppni SKAUST Hreinn 2012.
Þér finnst þetta sniðug græja, þessi fótur var pantaður erlendis frá ég spurði ekki hvaðan.
Það er hægt að lekkja hann fram með skeftinu og það er hnappur á honum sem hægt er að ýta á og lengja og stytta í fætinum, handhægt.
Þarna er hann undir Sako 85 Hunter, í caliberinu 2506.
Sæll Veiðimeistari
Við hjá Sportvík erum að skoða vörur frá þessum framleiðanda og ef samningar nást þá getum við boðið upp á þennan fót og eins tvífætur. Við munum setja það inn á facebook síðuna hjá okkur um leið og hlutirnir eru komnir á hreint. Tékkaðu á okkur
https://www.facebook.com/pages/Sportv%C ... 6188617822