Page 1 of 1

Spurning um sót.

Posted: 30 Jul 2012 08:58
by johann
Sælar skyttur,

Getur einhver uppfrætt mig um hvort einhver sérstök ástæða gæti legið að baki mikils sóts í hlaupi?

Riffill konunnar (.243 win) er ferlega skítugur eftir 20 skot og er lengi að komast niður í blátt.

kv.

Re: Spurning um sót.

Posted: 30 Jul 2012 09:45
by Veiðimeistarinn
Sæll Jóhann.
Hvaða riffill er þetta og hvað er hann gamall?
Hvernig skotum voruð þið að skjóta úr honum, hvað þungum kúlum og á hvað miklum hraða?
Bláminn í hreinskvoðunni kemur ekki af sóti hann kemur af koparnum af kúlunum sem sest innan í hlaupið, koparmagnið fer eftir viðnámi kúlunnar í hlaupinu, það eykst eftir sem kúlan er þyngri til dæmis 100 gr. í 243 við hámarks hleðslu.
Sótið eða miklu heldur sót gjall sest frekar inn í hlaupið ef verið er að skjóta léttum kúlum á miklum hraða úr rifflinum.
Ekki gott að átta sig á þessu nema vita hvaða skot hafa verið að fara úr honum.

Re: Spurning um sót.

Posted: 30 Jul 2012 12:26
by johann
Þetta er .243 win - skotinn 20 skotum af sierra 90gr fmj með 38 gr N550 sem er töluvert undir hámarkshleðlsu skv manual. (40,2 gr minnir mig), CCI LR hv.h.

Hlaupið var fullhreinsað fyrir skotin, en er allt í allt skotinn c.a. 100 skotum. Vandamálið er ekki að hreinsa koparinn, heldur hversu mikið sót virðist þurfa að þrífa áður en maður kemur niður í kopar - var að spekúlera hvort að þetta hefði eitthvað með hleðsluna að gera eða kúlusetuna - col sett skv manual en rekst í löndin (hef þau styttri næst).

Re: Spurning um sót.

Posted: 30 Jul 2012 13:29
by Veiðimeistarinn
Sýna primerarnir einhver þrýstingsmerki? Eru hylkin nokkuð sótug eftir skotið?
Þessi hleðsla virðist vera samkvæmt töflu milli 2900 og 3000 fet það ætti að vera í lagi.
Ef kúlan liggur fram í rílur eykur að þrýstinginn, betra að hafa örlítið fríhlaup.
Svona sót á svosem ekki að vera vandamál nema það sé farið að koma niður á nákvæmninni, grúppar hann illa?

Re: Spurning um sót.

Posted: 30 Jul 2012 13:39
by johann
Nei, engin þrýstingsmerki á primerum, ekki mikið sót á patrónum og mjög milt spark, miklu mýkra en á upprunalegu hleðslunum í skotunum, en hylkin voru upprunalega Norma 95gr jaktmatch (fmj) verksmiðjuskot. Sótunin er bara leiðinleg í þrifum. Höfum ekki skotið þessari úr benchrest, en ég næ 12 sm 5 skota grúppu á 300m með 7x scope - án þess að hafa tjúnað hleðsluna eitthvað til. Var búinn að grísa á að hraðinn yrði í kringum 2950 en ákoman var 2sm hærri á 300 en sá hraði gaf til kynna.

Re: Spurning um sót.

Posted: 30 Jul 2012 13:50
by Veiðimeistarinn
Þá sýnist mér þetta vera í besta lagi og ekkert að, bara þetta sót sem er að vísu leiðinlegt ef þú ert að þrífa oft :D

Re: Spurning um sót.

Posted: 30 Jul 2012 17:51
by gylfisig
ég hef verið að nota N-550 púður, og hef verið að sjá sót í hlaupi hjá mér. Einnig hjá öðrum sem eru að nota 500 púðrið. Sót í hlaupi er ekki í lagi, því það veldur ónákvæmni.
Prófaðu að skipta um púður. Reyndu td. N-160 ef þetta er í 243 með hefðbundinni kúluþyngd.