Page 1 of 1

6,5 x 47 eftir breytingu

Posted: 05 Aug 2012 11:06
by kra
Jæja þá er Stiller Predator kominn frá Finna úr smá útlitsbreytingu.
Setti Krieger HV hlaup á hann og GRS skefti frá Hlad. Mjög ánægður með hann. Skeptið algjör snilld.
Nightforce 12-42
versló2012 240.jpg
Eftir breytingu..
versló2012 002 - Copy.jpg
Fyrir breytingu

Skotinn til og hreisaður milli skota. Teknar nokkrar 3 skota grúbbur sem lofa mjög góðu.
Sú minnsta mældist 0,0125" :D kúla 100gn Scenar
versló2012 239.jpg

Re: 6,5 x 47 eftir breytingu

Posted: 05 Aug 2012 11:18
by E.Har
Skaustu bara einu skoti á blaðið og kom kúlan pínu þvers :-)

Glæsilegur riffill. Frábær grúppa Gæðagræja eins og í raun allt sem kemur frá Finna þessa dagana :lol: 8-) :D :)

Svo virðist hann bara vera í veiði þyngd.
Hvað er hraðin á svona 100 g kúlu?

Re: 6,5 x 47 eftir breytingu

Posted: 05 Aug 2012 11:42
by kra
Ekki búinn að hraðamæla þessa hleðslu eða prufa á lengri færum. Fékk hleðsluna hjá Finna og svínvirkar.
Vildi ekki taka fleiri skot í grúbbuna ;) leit svo andsk.. vel út eftir þrjú skot.

Re: 6,5 x 47 eftir breytingu

Posted: 05 Aug 2012 16:59
by Gísli Snæ
Eins og ég sagði áður Kristján - glæsilegur. Ætla að skella mér upp í Hlað eftir haldi og panta. Á bara eftir að ákveða litinn.

Re: 6,5 x 47 eftir breytingu

Posted: 06 Aug 2012 15:54
by Stebbi Sniper
Sæll Kristján!!!

Ég er að bíða eftir íhlutum í mjög svipaðan riffil og þú ert með þarna. Ég verð reyndar með Hunter útgáfuna af þessu skepti!!!

1. Segðu mér hvað er hlaupið langt sem þú ert með og er þetta 1/8,5 twist?
2. Getur þú vigtað þennan riffil og gefið mér upp þyngdina á honum?
3. Ertu með Jewel BR gikk í honum?

Re: 6,5 x 47 eftir breytingu

Posted: 07 Aug 2012 19:05
by kra
Sæll Stefán.
Hann er 7,7 kg með sjónauka og tvífætinum.
Já Jewell Br gikkur og 27" hlaup.