Sælir Aðalsteinn Sigurðarson heiti ég og er nýr á þessu spjalli. Ákvað að kynna mig þar sem að ég sé að hér er sú regla höfð að menn skrifi undir nafni sem er mjög gott.
Ég er ættaður austan að landi og hef verið að handfjatla byssur frá unga aldri. Hef ekki verið mjög iðin við skotveiðar seinustu ár en ætla að fara að stunda þær af meiri mæli héðan í frá, Því það er alltaf stutt í delluna. Svo hef ég ekki langt að sækja hana heldur.
Velkominn á spjallið.
Ég hef legið á greni með piltinum, kannski er eitthvað af dellunni þaðan. Hér er afrakstur dagsins á greninu, komið kvöld. Beðið eftir að síðasti kvolpurinn róaðist og yrði kallvænn, svo fór Aðalsteinn skaut hann skömmu síðar þegar ég hafði kallað hann út, sá var grár.
Við höfðum skotið tvo hvolpa af þessu greni viku áðursvo alls voru kvolparnir fimm.
Attachments
Aðalsteinn Sigurðarson við veiði dagsins
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is