Sælir
Komst loksins á stað þar sem var hægt að skjóta alla leið

. Fór um miðjan dag og skaut 4 skotum og var helvíti nálægt (sjá mynd), það var samt óstöðugur vindur og ákvað að koma seinna um daginn þegar vind lægði.

- 049 (550x413).jpg (274.78 KiB) Viewed 2158 times
Um kvöldið var aðeins betra veður og skaut 5 skotum og náði í mark í 3 skoti, 2 fóru í kassan en eitt lenti svona 5 cm til vinstri við hann, hæðin var sú sama á öllum skotunum en vindurinn gerði mér erfitt fyrir.

- 052 (550x413).jpg (184.58 KiB) Viewed 2158 times
þetta gerir um 50 cm 3ja skota grúbbu á 1630 metrum sem ég er mjög ánægður með í fyrstu tilraun,
ég þurfti að skrúfa 71 moa upp og 14,4 moa í vind sem var 4-5 ms kl 8.
Þá er bara að prófa 2k næst

Kv. Pálmi S. Skúlason
When discussing caliber, Dead is dead and it’s not worth arguing about.