Page 1 of 1

Fyrispurn vegna útsels

Posted: 08 Aug 2012 23:23
by Gisminn
Jæja ég er að koma aftur eftir úthaldið í gædamenskuni í laxinum en ég skaut 2 útseli eins og kom fram um dagin en fór svo að spekulera.
Er enn borgað fyrir kjálkann af útsel ? Ég vet að hringormanefndin gerði það en er hún ekki löngu hætt ?

Re: Fyrispurn vegna útsels

Posted: 08 Aug 2012 23:44
by Tf-Óli
Ég var í þessu fyrir 20 árum. Þá fékkst borgað fyrir kjálkann, og selinn í refafóður. Auk þess fékk Páll Leifsson (sem ég var aðstoðarmaður hjá) greitt fyrir ýmis sýni úr selnum.
Ég efast um að hringormanefnd sé enn til.

En selveiðar eru skemtilegar. Í hófi þó :)

Re: Fyrispurn vegna útsels

Posted: 09 Aug 2012 00:22
by Gisminn
Satt Ólafur en ég er nefnilega líka að skjóta fyrir veiðifélögin ef selurinn gerir sig of heimakominn í ósunum og er með bæjarleyfi á Blönduósi ef ég þarf að stugga við kobba þar ;)