Page 1 of 1

Bullet Seating Septh

Posted: 10 Aug 2012 16:08
by Bc3
Sælir ég prufaði þessa aðferð

http://www.youtube.com/watch?v=Jv-D1mEI ... re=related

ég er með Tikku 243 og nota ég Sierra MK 70gr

ég er með ny lapua hylki lengdin á þeim er 2,034"
Sierra 70gr MK kúla er ca 0,835"
uppgefið OAL er 2,638" og þá stendur kúlan 0,603" uppúr hylkinu og 0,232 ofaný hálsinum

en síðan prufaði ég þessa aðferð sem er í videoinu hérna fyrir ofan og þá kom ég 2.701" í riffilin og gat lokað. Þannig að þá stendur kúlan 0.670 uppúr og er 0,165 ofaní hálsinum

mér þykir þetta svo svakalegur munur að ég spyr ykkur er þetta safe?

Re: Bullet Seating Septh

Posted: 10 Aug 2012 19:24
by Bc3
Það hlítur einhver að vita þetta sem er að prufa sig áfram með kúlu ísettninguna hjá sér

Re: Bullet Seating Septh

Posted: 10 Aug 2012 19:46
by E.Har
Þú faerð meiri þrýsting ef þú keyrir kúluna í rillurnar svo eins og venjulega byrja lægra og vinna sig upp.
Persónulega geri ég greinarmun á veiðihleðslu og gatara. Vil hafa veiðikúluna örugga frá rillum. Vil alls ekki lenda í fastri kúlu á veiðum.

En framleiðendur og hleðslutöflumeistarar verða alltaf að vera oruggu megin, vegna þess hive rifflar eru mismunandi svo bara að prófa sig áfram en muna fara varlega og skoða hylkin.

Re: Bullet Seating Septh

Posted: 10 Aug 2012 19:56
by Benni
Allir verksmiðju rifflar eru með löngu "fríbori"? þe lengra útí rifflurnar en öll verksmiðjuskot eru fyrir hvert caliber, oft er það svo langt að það er ekki hægt að setja léttar kúlur útí rifflur.
Uppgefið OAL í bæklingum miðast við verksmiðjustaðla eða styttra til að hleðslur passi örugglega í magasín og nái ekki útí rifflurnar.

Það er ekkert að því að setja kúlur útí rifflur svo lengi sem þú aðlagir hleðsluna, bara að byrja hleðsluprufur frá byrjun því það er meiri þrýstingur ef kúlurnar eru í rifflunum en svo geturðu lent í því að kúlurnar séu bara of stuttar og standa orðið of lítið niður í hálsinn til að haldast örugglega kyrrar.
Ef þú ert að hlaða veiði hleðslur er ekki sniðugt að setja þær of langt fram, ef þú þarft að hætta við skot getur kúlan setið eftir í hlaupinu og lásinn orðið fullur af púðri sem er ekkert gaman(=
Og það er heldur ekki gott að láta kúlurnar rétt snerta rifflurnar því munur milli einstakra kúlna úr sama pakkanum er það mikill að ein snertir rifflur og næsta kanski ekki sem hjálpar ekkert til við nákvæmni.
Annað hvort aðeins frá eða láta þær örugglega í rifflurnar.

Annars eru mikið fróðari menn hér sem geta örugglega gefið ýtarlegri og betri ráð en ég.

Re: Bullet Seating Septh

Posted: 10 Aug 2012 20:03
by Bc3
Ja þetta eru bara kúlur sem ég ætla skjóta á pappa með

Re: Bullet Seating Septh

Posted: 11 Aug 2012 15:46
by johann
67mm er fínt í sierra 70gr mk - myndi ekkert vera að eltast við að troða þessu langt inn í hlaupið.