Page 1 of 1
T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 17:34
by petrolhead
Sælir piltar....og stúlkur ef þær eru til staðar.
Ég er spá í að fá mér nýjan riffil og hallast talsvert að Tikka og þá helst T3 Tactical eða Varmint Stainless.
Nú er TAC nærri 100kalli dýrari en SS og spurningin er því hvort TAC er þessum 100kalli betri ???
Ég er aðallega að hugsa um veiðar en langar líka að geta tekið þátt í skotkeppni án þess að verða mér alveg til skammar (fyrir annað en eigin klaufaskap það er)
Endilega tjáið mér skoðun ykkar því það er alltaf gott að fá sem flest sjónhorn á málin.
MFFÞ
Gæi
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 17:55
by Gísli Snæ
Sæll
Í fljótu bragði man ég eftir nokkrum atriðum - þyrfti að fletta upp til að fá þetta nákvæmlega.
Tactical er með picantinny rail - húðaður með sérstöku efni þannig að hann er betur varinn gegn riði - hann er snittaður - með stillanlegum kinnpúða og festingar fyrir ólar á mörgum stöðum.
Er Tikka Tactical ekki frekar takmarkaður í caliberum?
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 18:02
by TotiOla
Allt rétt hjá Gísla nema festingarnar, ekki nema búið sé að breyta því á nýrri útgáfum.
Ég tæki Varmint og eyddi 100 þús. frekar í gott gler og aukahluti. Bara mín tvö cent.
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 19:03
by maggragg
Tikka tactical hefur öðruvísi hlaup, ég man ekki nákvæmlega í hverju það fólst en það er áberandi að hlaupið breikkar við endan, þ.e. sverara við hlaupendan en í miðjunni. Hvað það breytir veit ég ekki en ég skaut úr svona tactical með hlaupbremsu í .308 um daginn og kom hann mér verulega á óvart. Var líka að skjota hrikalega vel. Veit samt ekki hvort að 100 þ kall réttlæti munin, gætir keypt varmint og sett á hann nýtt alvöru hlaup og samt ódýrara en tactical.
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 20:07
by Veiðimeistarinn
Mr. petrolhead sem kallar sig Gæa.
Ég vil benda þér á að á þessu spjalli koma menn fram undir nafni, alla að jafnan.
Ég vona að þú sért maður til að virða það, það er ekki upp á það bjóðandi og vægast sagt ójafn leikur að vera að spjalla um ágæti skotvopna við ,,andlit með gæsahettu"

Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 22:23
by petrolhead
Veiðimeistari;
Ég þakka fyrir ábendinguna og biðst forláts á þessum mistökum mínum, taldi mig vera búinn að gera sjálfvirka undirskrift klára en svo hefur ekki verið, vona að hún sé komin í gagnið núna.
Langar á móti að benda þér á að seinni tvær línurnar sem þú skrifaðir mér voru nú kannski ekki nauðsynlegar svona sem fyrsta ábending til manns sem er að senda hér inn í fyrsta skipti
MBK
Gæi
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 22:48
by SPP
...er með T3 varmint stainless
er ekki hræddur við að fara með hann í mót.
sammála með línurnar tvær
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 22:50
by Veiðimeistarinn
Fyrirgefðu mér Garðar, ég á það stundum til að taka dálítið stórt upp í mig
Þessar tvær línur áttu svosem ekkert sérstaklega við þig, svo ég afsaki mig aðeins. Þetta var kannski svona lýsing eða myndhverfing á því almennt hvernig ég upplifi að spjalla við nafnlausa menn hér á spjallinu

Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 23:02
by petrolhead
Í góðu lagi Sigurður ég skil sjónarmið þitt...og á það líka sjálfur til að opna þverrifuna á mér meira en ég hefði átt að gera
Ég á hins vegar í basli með þessa síðu, er búinn að vera að reyna að senda inn svar en það virðist ekki vera að ganga ???
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 23:12
by petrolhead
Þakka skjót og góð svör strákar.
Gísli;
Þetta var gott hint hjá þér með caliberin, eitthvað sem ég hafði ekki hugsað út í og fór og fann þetta á heimasíðunni hjá Tikka. Það sem er í boði í TAC er 223, 308 og 300win mag. Þetta gerir valið mun léttara því ég er með 6,5x55 efst í huga.
Þú mnnist líka á að það sé góð húðun á hlaupinu á TAC á ekki stainless hlaupið að vera pottþétt í alla vega slark ?
Tóti;
Góð 2 cent...það er jú þetta sem var að naga mig það er hægt að gera margt skemmtilegt fyrir 100kall svo mér fannst TAC þurfa að hafa talsvert fram yfir.
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 14 Aug 2012 23:38
by Gísli Snæ
Er annars sjálfur með Tikku Varmint í 260 rem (ekki stainless). Ef maður er eitthvað hræddur við rið og þess háttar er alltaf hægt að láta duracoata hlaupið og lásinn. Veit að Bóbó byssusmiður gerir það.
Síðan er mjög auðvelt að uppfæra þessa riffla. Einn félagi minn keypti sér bara allra ódýrustu Tikku sem hann fann og skipti síðan um nánast allt nema lásinn. Fékk nánast full custom byssu á fínu verði.
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 15 Aug 2012 08:11
by Veiðimeistarinn
Miðað við kaliberaframboðið í TAC er Varmint riffillinn betri kostur.
Ég veit til þess að menn voru töluvert að kaupa Varmint riffilinn í 6,5x55 og fara með hann beint til Arnfinns og láta hann rimma hann út í 6,5-284 og flúta hlaupið og snitta á hann hlaupbremsu sem auðvelt er að skrúfa af og setja deyfi í staðinn (þegar það verður leyft).
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 15 Aug 2012 11:58
by E.Har
Mér finnst þetta soldið dýrt fyrir tac !
100 kall gefur þér nýtt KC skepti í hlað.
Átt þá léttara plastskeftið til að veiða með.
Setja 50 kall í viðbót og lát fInna taka hann í gegn

Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 15 Aug 2012 13:49
by TotiOla
Ef þú (Garðar) vilt svo fleiri álit þá er Google frændi alltaf reiðubúinn, þ.e.a.s. ef þú ert ekki búinn að því nú þegar.
Google: t3 varmint vs. t3 tactical
Hér er svo góð grein (review) um helstu eiginleika Tactical riffilsins:
http://www.snipercentral.com/tikkat3.htm
Re: T3 Tactical vs. T3 varmint Stainless
Posted: 16 Aug 2012 00:21
by petrolhead
Góða kvöldið.
AAHHH gott að vera kominn heim í frí af sjónum
Þetta hefur verið mjög hjálplegt, bestu þakkir til ykkar. Ég ætla að fara í Varmint Stainless, sýnist það vera hagkvæmur kostur.
Sigurður; Ég ætla að halda mig við 6,5x55 í bráðina alla vega, hvað sem seinna verður. Mér finnst það hinsvegar vera áhugavert að láta flúta hlaupið (vissi ekki að það væri gerlegt eftir á) og snittun fyrir bremsu er nokkuð sem ég held að ég fari í, er það eitthvað í vinnslu að deyfar verði leyfðir ???
MBK
Gæi