Page 1 of 1

Uppstoppun á uglu

Posted: 15 Aug 2012 19:37
by T.K.
Sælir
Haldiði að konan hafi ekki veitt fyrir mig uglu. Vopnið var Ford F150. Greyjið dó samstundis og þessi elska kunni ekki við að láta hræið liggja. Þar sem komnar eru nokkrar rispur á bílinn er rétt að fá eitthvað út úr þessu og stoppa greyjið upp, þeas brand ugluna.

Ekkert er samt eins mikil móðgun við náttúruna eins og illa uppstoppað dýr. Vitið þið um góðann uppstoppara og hvað kostar að stoppa upp litla uglu?

Image

Re: Uppstoppun á uglu

Posted: 15 Aug 2012 21:51
by Stebbi Sniper
Ég hef mjög oft heirt talað um nàunga sem heitir Ingi og býr í Vestmannaeyjum sem afbragðs uppstoppara þegar kemur að fuglum!

Re: Uppstoppun á uglu

Posted: 15 Aug 2012 23:23
by samuel83
Ég á smyril eftir þorvald á Náttúrufræði stofnun sem heppnaðist svona líka vel.

Mæli með honum

Kv. Samson

Re: Uppstoppun á uglu

Posted: 16 Aug 2012 10:16
by E.Har
Ætli Reimar sé ekki flottastur á klakanum í dag svo og strákarnir á Nátturufræðistofnun.

kannski betra að hafa samband við þá svo þú lendir ekki í vésini með greyið!

Re: Uppstoppun á uglu

Posted: 16 Aug 2012 11:22
by T.K.
Hafið þið email eða símanúmer hjá td Reimari?

Re: Uppstoppun á uglu

Posted: 16 Aug 2012 16:04
by E.Har
hann er á Egilstöðum finnur hann undir UST síðunni um hreindyraleiðsögumenn.

Re: Uppstoppun á uglu

Posted: 16 Aug 2012 16:42
by TotiOla
Mæli með Reimari :!: Hann er með eitt stk. tarfshaus frá mér í frystinum 8-)