Page 1 of 1

QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 16 Aug 2012 20:19
by Sveinn
Ágætu QuickLoad notendur,

held endilega að QuickLoad geti reiknað út upphafshraða (V0) á kúlu að gefnum réttum forsendum. Nú er spurning hvort einhver QL-notandi geti gert mér greiða og upplýst mig um reiknaðan upphafshraða á eftirfarandi hleðslum:

6,5x55 Tikka T3 lite riffil, twist 1:8, hlaup 570 mm langt (22,44"):
Nosler BT 120 gr 6,5 mm
49 gr VV N-160
77 mm OAL
Lapua hylki (ef það skiptir máli)

og (í sama riffil):
Scenar 123 gr 6,5 mm
46 gr N-160
76,5 mm OAL

Ef til eru önnur forrit, t.d. frítt á netinu, sem gera sama hlut, þá væri ég þakklátur fyrir tips eða slóðir á þau.

Öll aðstoð vel þegin, má líka senda mér póst á sveinn@primordia.is ef menn vilja það frekar.

Bkv., Sveinn

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 17 Aug 2012 10:29
by E.Har
jb gerir það líka en hvar á landinu ertu?

Er ekki bara einfaldara að hraðamæla þetta fyrir þig :-)

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 17 Aug 2012 10:40
by maggragg
Baltip ætti að vera nálægt 2850 fps en vel þjappað í hylkið miðað við standard rúmmál (106%)

Lapua ætti að vera nálægt 2680 fps, púður um 101% af rúmmáli hylkis.

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 17 Aug 2012 12:53
by Sveinn
Takk fyrir þetta, Magnús, hélt reyndar að BT færi hraðar miðað við fallið sem ég hef mælt, sem er minna en ferilforrit gefa upp miðað við þennan hraða.

Einar, best væri að hraðamæla, ef þú hefur aðgang að hraðamæli þá væri það náttúrulega snilld. Ég bý í Reykjavík og fæ að vera í sambandi við þig þú ert til í að leyfa mér að mæla, t.d. í einkaskilaboðum á þessu spjallborði - eða þú hendir á mig pósti sveinn@primordia.is, þá fæ ég netfangið þitt.

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 17 Aug 2012 15:02
by E.Har
Ég á mæli.
Nota no 2 núna skaut No 1 fyrir ca 4-5 árum!

Get auðveldlega lánað þér hann, eða hnippt í þig næst þegar ég fer suðureftir (KEF) :P

nenni ekki að minka myndir hér 330 KiB !

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 17 Aug 2012 15:47
by Sveinn
Snilld! Er líka í SkotKef, hið besta mál, takk!

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 17 Aug 2012 17:59
by Gísli Snæ
Á einhvern tíma eftir að auglýsa hérna eftir tímasetningu hjá einhverjum sem mætir með hraðamæli út í Hafnir. Langar að hraðamæla nokkrar 260 Rem hleðslur.

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 17 Aug 2012 23:33
by E.Har
:D Tvælist stundum þar lika

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 18 Aug 2012 00:37
by Sveinn
Spurning um að slá saman í svona tæki, þeir sem eru að skjóta í Höfnum, E.Har hefur boðist til að lána en það er hægt að skemma svona tæki, þó að Einar sé sanngjarn og láni í einhverjum tilvikum. Ég sé not fyrir svona tæki 2x á ári fyrir mig eins og er, það kann að breytast. Nokkrir saman um svona mæli? Sendið mér póst, SkotKef menn, og við skoðum þetta, þeir sem vilja. Á næstu mánuðum. Geri ráð fyrir að þetta kosti fáeina 10x þúsara, ekki meira. Póstfang að ofan.

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 18 Aug 2012 12:55
by maggragg
Við keyptum fjórir saman svona mæli að utan og var það tíkall á mann. Tækið af gerðinni CED M2 og erum við hrikalega sáttir við hann.

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 18 Aug 2012 21:03
by Veiðimeistarinn
Já Magnús, var það ekki mælirinn sem mældi hraðann á mínum hleðslum á dögunum?
Mauser 6,5-284
95 gr. V-Max 60 gr. N-560 púður. Hraðinn mældist 3395 fet á skúndu
100 gr. Nosler Ballistic tip 60 gr. N-560 púður. Hraðinn mældist 3503 fet á sekúndu.

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 18 Aug 2012 21:06
by maggragg
Jú passar Sigurður. Mjög þægilegur og nákvæmur mælir :)

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 27 Aug 2012 16:39
by GBF
Quickload segir:
1: 2847 f/s og eins og komið hefur fram, vel þjöppuð hleðsla. Ekki hægt að mæla með þessarri hleðslu fyrir þrýstings sakir, orðinn yfir 54000 psi.
2: 2684 f/s.

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 28 Aug 2012 17:53
by Sveinn
Takk fyrir ábendinguna, Georg, hins vegar eru menn ekki sammála um max þrýsting fyrir þetta hylki eða við hvaða standard er miðað, CIP (mest evrópskt) eða SAAMI (USA). Á Wikipedia segir:
The CIP MAP for the 6.5 × 55 is 380 MPa (55000 PSI). SAAMI MAP for this cartridge is 46,000 CUP or 51000PSI.[2] All Swedish Mauser actions were proof-tested with a single 6.5 × 55mm proof load developing approximately 55,000 CUP (66,000 psi).
http://en.wikipedia.org/wiki/6.5x55mm

Þannig að SAAMI er lægri (svo látum við liggja milli hluta muninn á mælingum milli þessara staðla). Chuck Hawks segir þetta eiga sér skýringu, nefnilega að það sé mikið að gömlum Mauser lásum sem þola ekki eins mikinn þrýsting og nútíma lásar:
The SAAMI MAP for the 6.5x55 is kept low due to the many ancient surplus Krag-Jorgensen and M-94 Swedish Mausers sold in the U.S. If you are reloading for one of these old timers, avoid the maximum loads quoted below. Modern rifles chambered for the 6.5x55 can safely be loaded to 50,000 cup, and this is reflected in the maximum loads you will find in many reloading manuals.
http://www.chuckhawks.com/6-5x55.htm
(50.000 cup = 57.900 psi = 399 MPa, aths. mín)

Auðvitað á að taka öllum hleðslum með fyrirvara og á eigin ábyrgð. En í nútíma lásum í 6.5x55 er óhætt að fara hærra en 51.000 psi, ég hef lúðrað tugum af þessum hleðslum (49 gr 120 BT) í minni Tikku 6.5x55 og hylkin sýna engin merki um yfirþrýsting, segja mér fróðir menn.

En endilega leiðréttið ef þetta er rangt með farið.

Re: QuickLoad og V0 á kúlu

Posted: 30 Aug 2012 10:23
by E.Har
Vel tekið saman.

Ég notaði m-96 nokkuð lengi og vameð leiðinlega flatar hvellhettur í honum :-)

Málið er að herslan á þessum gömlu herrifflum var mismunandi eins og stálgæðin.
Ef þú ert með "modern lás og" engin þrýstimerki =þá er allt í lagi :-)

Endi hugsið málið ef þú rýmar smahlaup á sama lást út í 6,5-284 máttu þá auka þreýstingin með minna stál :-)