Page 1 of 1
Á refaslóðum
Posted: 18 Aug 2012 09:26
by Veiðimeistarinn
Bókin Á refaslóðum eftir Theodór Gunnlaugsson frá Bjarmalandi sem hefur verið ófánleg í fjölda ára er komin út í endurprentaðri útgáfu.
Tvímælalaust jólagjöf veiðimannsins í ár.
Það er Bjarmaland, Félag atvinnuveiðimanna á ref og mink, sem gefur bókina út nú.
Hægt er að fá bókina keypta á krónur 5.000,-
Listhafendur hafi samband við
Snorra Jóhannesson á Augastöðum í simum 435-1152 og 892-5052 netfang augastadir@emax.is
eða Aðalstein Jónsson frá Víðivöllum sem er á Akureyri í símum 453-6742 845-6742
Re: Á refaslóðum
Posted: 18 Aug 2012 23:00
by Veiðimeistarinn
Viðbótaupplýsingar frá Snorra á Augastöðum.
Salan fer vel af stað og þeir sem kynnu að hafa áhuga sendi póst á gullfesti@simnet.is.
Bókin kostar 5000 kr og verður send á okkar kostnað.
Venjulega höfum við haft þetta þannig að okkur er sendur póstur og þá svörum við með upplýsingum um reikning sem millifæra má á.
Biðjið bankann að senda staðfestingu á sama póst og þá fer bókin af stað.
Re: Á refaslóðum
Posted: 19 Aug 2012 20:24
by Spíri
Bjarmaland á heiður skilið fyrir að hlaupa undir bagga og klára dæmið, fékk bók hjá meistara Snorra um leið og ég fréti af útgáfunni og er lesningin hrein snilld.
Re: Á refaslóðum
Posted: 19 Aug 2012 21:16
by maggragg
Pantaði bókina þegar fyrsta auglýsingin kom, á eftir að lesa hana í vetur þegar tími gefst

Re: Á refaslóðum
Posted: 08 Dec 2012 17:18
by Sako75
Góða daginn, eru ekki allir búnir að tryggja sér eintak af þessari frábæru bók ?
Re: Á refaslóðum
Posted: 08 Dec 2012 17:19
by maggragg
Jú gerði það strax og hún var auglýst fyrst. Hef ekki ennþá haft tíma til að lesa hana, en klárlega efst á lista um leið og prófin eru búin
[breytt] Sá að ég var búin að skrifa akkurat þetta fyrir stuttu

Re: Á refaslóðum
Posted: 08 Dec 2012 17:57
by Veiðimeistarinn
Tekið af sjallsvæði Bjarmalendvefjarins og betumbætt í samstarfi við Hilmar.
Ef einhvern eða einhvern af kunningjum ykkar vantar bókina "Á refaslóðum" þá er nóg til af bókum.
Bókin kostar 5000 krónur og félagið greiðir sendingarkostnað.
Við höfum beðið væntanlega kaupendur að millifæra upphæðina í banka eða heimabanka, og senda á netfangið mitt gullfesti @simnet.is staðfestingu á kvittun (millifærslu).
Bækurnar eru í bílskurnum hjá mér og ég kem þeim í póstinn.
Kv. Hilmar Stefánsson símar 462-3004 og 863-4504 netfang gullfesti@simnet.is
Re: Á refaslóðum
Posted: 08 Dec 2012 18:18
by gylfisig
Ég á upprunalegu bókina, og keypti lika tvær í þessari nýju útgáfu, i gegnum Snorra á Augastöðum.
Reikna með því að kaupa amk eina í viðbót.
Seljendur mættu gjarnan senda mér eina.