Page 1 of 1

Heiðargæsin

Posted: 21 Aug 2012 15:12
by E.Har
jæja heiðargæsaveiðin komin af stað.
Brosandi og endurnærður ;-)

Remminn blaði að vísu í annað skiptið í 25 ára sögu hann.
Og í þetta skiptið endaði ég með einhleypu :-(
Actionið var samt að mestu búið svo ......

Hann er allavega mættur til Agnars í nýja skamtarafjöður.

E.Har
p.s var á norðvesturlandi og ágætt rennsli, sama hef ég heyrt af suðurlandi og héraði.
Voru allir að sjá soldið líf?

Re: Heiðargæsin

Posted: 21 Aug 2012 19:54
by Tf-Óli
Á milli vestur og norðurlands ;) ...var töluvert af fugli að sjá. Þoka gerði okkur erfitt fyrir við veiðar. Refur stór og mikill tók athyggli Spíra félaga míns um stund, en sá var ekki feigur.
Skothríð á heiðinni var hógvær, og gæti ég trúað að fleiri hafi veitt rólega eins og við.

Re: Heiðargæsin

Posted: 21 Aug 2012 21:15
by iceboy
Planið var að fara á Fljótsdalsheiðina í gærkvöldi en svo lentí ég óvart með á hreindýraveiðar svo ekkert varð úr því að fara í kvöldflug.

Hinsvegar tók ég nokkrar gráar með rifflinum.

Tók t.d eina úti í Jökulsá, þar sat hún á leiru. 200 metra færi.

Labbinn sótti hana þó svo að hann hafi ekki séð þegar ég skaut hana.
Það gerir það að verkum að ég er mjög sáttur við gæsaveiðina.

Enda er helgin búin að vera mjög góð.

1 hreindýr, 7 silungar og 6 gæsir

Re: Heiðargæsin

Posted: 22 Aug 2012 10:45
by Spíri
Þessi fékk að finna fyrir Nosler bst 75grs sem var búinn að ferðast 250 metra frá húsbóndanum, remington 6mm284. Skotið kom inn fyrir ofan lærið (nákvl.þar sem því var ætlað) og hreinsaði þar út, læri og bringur heilar sem er fyrir öllu.

Re: Heiðargæsin

Posted: 22 Aug 2012 12:54
by iceboy
Glæsilegt.

Mitt skot fór á svipaðan stað.

120 gr hollow point kúla úr 6,5 x 55

Re: Heiðargæsin

Posted: 22 Aug 2012 14:26
by E.Har
Spíri þetta er pínu kunnuglegt skepti á Þessum riffli.
Hvaða lás er þetta?

Re: Heiðargæsin

Posted: 22 Aug 2012 14:43
by Spíri
Sæll Einar, þetta mun vera Boyds thumble skeppti lásinn er rem 700 fyrrverandi .243 núverandi 6mm284 beddaður og rýmdur af Arnfinni. Riffillininn var áður í eigu Sigurðar hlaðmanns.