Page 1 of 1

Kúlur í 6,5

Posted: 22 Aug 2012 15:17
by iceboy
Hversu léttar kúlur er hægt að fá í 6,5 mm?

Þá er ég að hugsa um til nota á gæs

Re: Kúlur í 6,5

Posted: 22 Aug 2012 17:53
by oliar
Sæll ég fékk 100 graina kúlur Lapua FMJ í hlað um árið... mjög nákvæmar og góðar en líta út eins og litlir túrtappar :-)
Hins vegar hlóð ég þær aðeins niður (48.0 grain af N-160) eftir að 50.0 grain af sama púðri voru að sprengja svolítið við innsárið, en hvarf nánast við minni hraða. Eins las ég í norsku veiðitímariti að þeir notuðu einmitt þessa kúlu til rjúpnaveiða og þá mjög hægt til að skemma fuglinn minna.
Veit ekki aðgengi að þessari kúlu núna, en ég gat aldrei notað Norma 120 FMJ þar sem hún er nánast eina kúlan sem Tikan mín vill eki skjóta vel. Hins vegar hef ég skotið Lapua kúlunni frá 48.0 til 50.0 og lítill sem engin munur á ákomu, en talsverður munur á skemmdum.
Þannig að ekki bara drepur hraðinn heldur getur maður fengið auknar skemdir !!

kv. Óli

Re: Kúlur í 6,5

Posted: 23 Aug 2012 13:53
by E.Har
man eftir 85 gr Sierra
og 90 gr V-max

Re: Kúlur í 6,5

Posted: 23 Aug 2012 13:59
by iceboy
Takk fyrir þetta.

Ég ætla að skoða þetta mál aðeins og prófa mig áfram.

En ég get líka alltaf haldið áfram að nota 120 gr Barnes trx hollow point kúluna sem ég notaði á hreindýrið.

Hún kom vel út bæði á hreindýrið og gæsina.

Gæsin steindrapst en það voru engar kjötskemmdir í henni.

Ég var aðeins að hugsa um léttari kúlu svona með það í huga að fá kannski aðeins flatari kúlubana

Re: Kúlur í 6,5

Posted: 23 Aug 2012 14:31
by konnari
Ég veit að nosler 100gr. bt. kemur mjög vel út í mörgum 6.5x55 rifflum og hún gefur þér flatari feril en 120 gr. kúlur og er ekki að springa í spað í gæs kannski eins og 95 v-max eða 85 gr. Hollow point myndu gera. Færð þessa kúlu í hlað !

Re: Kúlur í 6,5

Posted: 23 Aug 2012 15:03
by iceboy
Ég á líka 100 gr spitzer sem ég á eftir að prófa í gæsina.

Veit einhver hvernig þær hafa reynst í gæsina?