Page 1 of 1

Byrjandi

Posted: 25 Aug 2012 21:18
by jonh
Er búin að vera lesa þetta spjall undanfarið og margt fróðlegt og skemmtilegt hérna, frábært framtak að halda úti svona síðu.
Þannig er mál með vexti að ég er alveg nýr í þessum bisness, en áhuginn er að magnast mikið. Mig langar því að fá smá ráð hvernig best er að byrja í þessu. Hvernig riffill á maður að fá sér þá tegund? eða á maður kannski að bíða eftir því að fá B réttindi og fá sér eitthvað sniðugt þá? Eða á maður að byrja að fá sér haglabyssu.
Hef aðeins verið að skoða heimasíður byssubúðana og þar finnst mér t.d. voðalega lítið úrval af 22 cal rifflum. Endilega látið í ykkur heyra.

Með fyrir fram þökkum Jón H

Re: Byrjandi

Posted: 25 Aug 2012 23:55
by TotiOla
Sæll Jón H

Verandi frekar nýr í þessum bransa sjálfur, miðað við marga reynsluboltana hér inni, þá get ég bara gefið þér ráð út frá þeirri litlu reynslu sem ég hef, hverju ég sé eftir og hvað ég var ánægður með að gera. Því ber að taka eftirfarandi ráðleggingum með þennan fyrirvara í huga :mrgreen:

Nr. 1 - Ég mundi fjárfesta í góðum .22 lr riffli með þokkalegum sjónauka til æfinga, og þá meina ég æfinga til framtíðar. Sjálfur keypti ég nýjan Marlin 980 CF S og setti á hann Nikko Stirling sjónauka sem ég keypti notaðann. Var aldrei ánægður með sjónaukann og var það að lokum ástæða þess að ég skipti á rifflinum og .223 um leið og ég fékk B-leyfið. Sé alltaf eftir því að hafa ekki haldið .22 rifflinum áfram og safnað mér frekar fyrir stærri riffli.

Nr. 2 - Varðandi riffilkaup almennt þá heyrði ég oft talað um að maður ætti að eyða 50/50 í sjónauka og byssu. Ég tók lítið mark á því til þess að byrja með (og eyddi um 100 þús. í riffil en 20 þús. í sjónauka) en í dag reyni ég að fara eftir því. Er mjög sáttur við setup-ið mitt núna. Borgaði um 175 þús. (+/-15 þús.) fyrir þessa fjóra hluti sem ég á (2x rifflar - 2 sjónaukar) í stað þess að eyða 250-300 þús. í riffil og 50-100 þús. í sjónauka (þó það geti alveg gengið í sumum tilfellum). Einhver benti mér á þá "common sense" speki einu sinni að það er alveg sama hversu góðan riffil þú ert með, þú hittir ekki ef þú ert með ónýtt gler ;)

Nr. 3 - Rétt eftir að ég tók A-leyfið keypti ég mér notaða pumpu, Benelli Super Nova. Flott og vel hönnuð byssa en ég hitti aldrei almennilega með henni. Kom illa upp, að mér fannst, og var þung að bera á veiðar. Þ.a.l. naut ég þess ekki fyrsta árið að veiða með haglabyssu og mundi, ef ég væri að taka prófið í dag, skoða það frekar að fá mér létta og góða tvíhleypu. Læt mig dreyma um að bæta einni svoleiðis U/Y í safnið fyrir rúpuna.

Nr. 4 - Varðandi haglabyssukaup almennt tel ég að það sé gott að hugsa eins og blindur og heyrnalaus maður (eins kaldhæðnislega og það hljómar). Þá á ég við að kaupa byssu sem þér líður vel með að taka upp og sveifla. Ekki velja þér byssu eftir einhverju merki sem frændi þinn segir að sé best eða þér finnst svakalega flott útlítandi. Prófaðu sem mest, taktu með fyrirvara hvað öðrum finnst virka og vera flottast, og veldu þá byssu sem hentar þér best :)

Vona að þetta hjálpi þér eitthvað, en átta mig á því að þetta gæti gert valið ennþá erfiðara fyrir þig :roll: Þú verður bara að sníða þér stakk eftir vexti peningalega séð. Oft er hægt að gera góð kaup í góðum, lítið notuðum .22 lr rifflum sem og tvíhleypum/pumpum. Svo er þetta líka bara spurning um hvort þú hefur meiri áhuga á riffilskotveiðum/fimi eða haglabyssuveiði/skotfimi? Líklega ágætt að byrja bara á öðru hvoru og þá má ég til með að nefna að ef þú ert meira að hugsa um veiði en skotfimi, þá finnst mér mikið auðveldara að komast í haglabyssuveiði en riffilveiði.

Gangi þér vel :D

Re: Byrjandi

Posted: 26 Aug 2012 00:07
by TotiOla
P.s. Keypti Marlin riffilinn í Intersport en þeir eru með sæmilegt úrval af .22 rifflum frá Marlin og Mossberg. Engir verðlaunarifflar svo að ég viti til en þokkalegustu æfingagræjur :) Getur kíkt á þetta hjá þeim uppi á höfða (sama húsi og Húsgagnahöllin, Krónan ofl.), en vertu tilbúinn að þurfa að lesa þig til, um þær byssur sem þeir eiga, á netinu þar sem ég man ekki eftir að hafa fengið mikla hjálp frá þeim.

P.p.s. Gleymdi að minnast á það í fyrri póstinum. ÆFINGIN SKAPAR MEISTARANN! Vertu duglegur við það að æfa þig fyrsta árið og helst bara eins mikið og þú getur, eins lengi og þú getur :)

Re: Byrjandi

Posted: 26 Aug 2012 09:22
by Stefán_Jökull
Já, það er eiginlega engu við þetta að bæta. Gangi þér vel.

Re: Byrjandi

Posted: 26 Aug 2012 12:41
by Aflabrestur
Sæll.
Þetta er nokkuð gott það sem komið er. Ef ég ætti að ráða þér heilt þá væri CZ fyrsti kostur og þá gjarnan 455 eða 453 þetta eru hörku vandaðar græjur, nákvæmar og endast þér allt lífið, 455 væri toppurinn með stillanlegum gikk og skiftihlaupi. Næsti kostur hjá mér væru dýrari Savage típurnar áhugaverð skefti og accutrigger en svipað verð og CZ. Ef þú ætlar í eh ódýrt þá tækji ég Winchester wildcat (sem er bara Rússneskur Toz undir öðru nafni) Rússin klikkar ekki þótt grófur sé. Sneiddu hjá öllu sem Tyrkland og Kína kemur nálægt í skotvopnum nema að þú hafir gaman af happdrætti.
Fáðu þér eins góðan sjónauka og þú hefur efni á. Ef þú ætlar ekki í meiri stækkum en td. 9x og færi ekki meir en 50m og ekki BR þá dugar flest, en ef þig langar í meiri stækkun þá eru flestir ódýrir sjónaukar ónothæfir eftir ca 16x stækkun orðnir óskýrir og dimmir, er búinn að prufa og eiga þá nógu marga til að vita þetta. Þannig að ég færi í milliklassa sjónauka td. Burris, Leupold, Meopta eða eh. svipað.
Góður .22 og þokkalegur sjónauki er eh. sem allar skyttur ættu að eiga og ef valið er vandað þá dugar hann þér og börnum þínum líka.
Ég er sjálfur í dag að nota mest annars vegar Otterup einskota með Leupold vxIII 6,5-20x40 kíki þetta er ágætis græja sem kemur orginal með gatasigtum og kostar eh. 25.000- í Hlað og hinns vegar 40+ ára Toz með hræódýrum Bushnell Banner 3-9x40 með ljósi.
Það má oft gera fín kaup í notuðu dóti td. á Hlað og Bland ef menn eru þolinmóðir og gera dónatilboð.
EN fyrir allamuni vandaðu valið það er fátt jafn fljótt að drepa áhugann og græjur sem virka ekki.

Re: Byrjandi

Posted: 26 Aug 2012 14:57
by Benni
Sammála öllu hér að ofan og sérstaklega með að mæla með CZ .22lr, er með CZ 452 lux vinstri handar og er hann alveg magnaður, hef átt marga riffla og er þessi með skemmtilegri rifflum sem ég hef átt, Savage eru fínir en CZ eru mikið betur smíðaðir og til lengri tíma litið mikið betri fjárfesting að mínu mati.

Varðandi haglabyssu þá er aðal spurningin hvað þú vilt, margir byrja á pumpu og selja hana svo og fá sér hálfsjálvirka þegar þeir geta og enda svo á að fá sér tvíhleipu fyrir leirdúfu, rjúpu og annað og nota hálfsjálfvirku á gæs, svartfugl og endur svo af hverju ekki sleppa pumpuni og fá sér strax þokkalega tvíhleipu?
Veit ekki um marga sem nota pumpu sem aðal byssu en örugglega einhverjir sem kjósa þær umfram aðrar týpur.
Ef ég væri að byrja núna fengi ég mér CZ .22lr og Marocchi First 12 gauge tvíhleipu og bæta við Benelli hálfsjáfvirkri seinna og auðvita einhvern stærri riffil td, Tikka T3 í 6,5x55 eða 308 win.
Þá væri maður kominn með flott sett sem passar fyrir alla hugsanlega veiði hérlendis og mest allt erlendis.

Re: Byrjandi

Posted: 27 Sep 2012 20:07
by Dr.Gæsavængur
Góðir punktar hér fyrir ofan.. Ég er einn af þeim sem keypti mér bara ódýr vopn fyrst enda alls ekkert viss hvort ég myndi hanga fastur í þessu sporti.. Keypti mér maverick pumpu og var fyrst um sinn bara að skjóta fáeinar rjúpur, endur og svartfugla. Það dugði mér vel fyrsta árið, fékk þá B-leyfið og keypti frekar ódýran Ruger 308.riffil með leupold sjónauka. Hann felldi í fyrra fyrsta hreindýrið mitt og stóð sig vel. Einhvertíma vildi ég svo fá mér 22.lr og keypti mossberg plinkster sem var reyndar ekkert merkilegur.
Semsagt byrjaði á ódýrum vopnum, prufaði alla veiði, festi mig rækilega í sportinu og allri delluni í kringum þetta og fór núna á þessu ári að skipta út flotanum..

Fékk mér Bredu Grizzly hálfsjálfvirka, rosalegt verkfæri sem hefur komið mjög vel út.
Fékk mér svo CZ 452 lr. og seldi mossberginn. Á honum er ódýr sjónauki en hann skýtur ótrúlega vel.
Að lokum seldi ég Rugerinn og keypti mér Rössler 6,5x47. Á honum er flott gler frá Sightron. Hann er heldur betur að virka flott og vinur minn tók sitt fyrsta hreindýr með honum um daginn.. Stórskemmtilegt tæki sem ég hlakka mikið til að fikta meira með á lengri færum.

Finndu bara góðan milliveg í þessu fyrst og fáðu þér dót sem getur enst lengi og vel þó það sé ódýrt, það getur oft alveg gert sömu hluti og hitt fína stuffið. Skiptir öllu að æfa sig. Um að gera að prufa allt og sjá hvað þér finnst skemmtilegast.

Góða skemmtunn og gangi þér vel í þessu!

Re: Byrjandi

Posted: 28 Sep 2012 09:49
by konnari
Það eru komnar mjög góðar raðleggingar fyrir þig........ég tek undir það með mörgum að kaupa þér góðann og vandaðan CZ 22lr og slepptu því að kaupa þér pumpu....hún á bara eftir að rykfalla inn í skáp, keyptu þér frekar góða tvíhleypu og vandaða hálfsjálfvirka t.d. Benelli, Bredu eða Berettu seinna. Ef þú hefur síðan áhuga á stærri riffli þá ertu nú þegar búinn að fá góðar ráðleggingar þar....gott að fá sér t.d. Tikka í 260 rem, 6.5x55, 25-06, 270win eða 308 svo eitthvað sé nefnt. Þá ertu í góðum málum....

Re: Byrjandi

Posted: 01 Oct 2012 10:35
by E.Har
Fínar ráðleggingar hér að ofan og sérstaklega frá Tóta Óla.

EF við veltum fyrir okkar hvað við veiðinördarnir notum.
(Ekki byssusafnararnir)
Þá eigum við flestallir:

Þokkalega 22 til að plinkameð.
Yfir undir haglabyssu. leirdúfa rjúpa og auka byssa.
Semioutomat, þokkalega vandað. Þetta er aðalbyssan hjá flestöllum.
Svo eru það rifflarnir ;) þar byrjar dellan fyrir alvöru en til veiða á Íslandi
þarf bara einn í t.d 6,5-55 6,5-284 25-06 270 eða einhvað þokkalega flattskjótandi sem ræður við liðlega 100 g kúlu vegna hreindýrs en er ekkert allt of stórt fyrir fugla.

Þannig að þegar þú ferð af stað þá er sniðugt að velja einhvað sem fylgir þér.
Y/U haglabyssa og þokkalegur plinkari. Meir áhersla á haglarann.
Stefna svo á semi fljótlega.

Gler á 22 þarf ekki að vera merkilegt enda ekki mikið í húsi þó þú klikkir með honum
Glerið á alvöru riffil þarf að vera alvöru.
Sel min t.d ekki heldur fara þau bara frá riffli til riffils! :roll:

Re: Byrjandi

Posted: 01 Oct 2012 11:04
by Veiðimeistarinn
Alveg eins og talað út úr mínu hjára Einar, ég er þér algarlega sammála :D