Page 1 of 1
Fuglaveiðitímabilið hafið
Posted: 01 Sep 2012 09:59
by maggragg
Jæja, þá er tímabilið hafið. Frá og með deginum í dag má veiða í flestum veiðistofnum. Hérna á Suðurlandinu virðast andastofnarnir koma vel undan sumrinu og gæsin lofar líka góðu. Hvaða tilfinningu hafa menn fyrir þessu?
Spurningin er hinsvegar hvort að fuglinn sé tilbúin svona snemma, þ.e. öndin.
Re: Fuglaveiðitímabilið hafið
Posted: 01 Sep 2012 10:12
by iceboy
Ég var á austurlandinu fyrir 10-12 dögum síðan, þá var öndin enþá með ófleiga unga
Re: Fuglaveiðitímabilið hafið
Posted: 02 Sep 2012 15:22
by Dr.Gæsavængur
Var á heiðum norðanlands um síðustu helgi og fékk mikið af mjög smáum öndum inní kvöldflug meðan beðið var eftir gæs.. Læt þær eiga sig í bili og leyfi þeim að bæta aðeins á sig! Finnst líka skemmtilegra að taka önd samhliða rjúpu.. En annars er maður bara spenntur.. Nóg af fugli víðast hvar held ég, allavega norðan heiða

Re: Fuglaveiðitímabilið hafið
Posted: 03 Sep 2012 18:46
by maggragg
Hefur einhver séð ástandið á rauðhöfðanum og urtöndinni, eru þær líka seinar í ár?