Page 1 of 1
Riffiltöskur
Posted: 12 Sep 2012 12:18
by iceboy
Hvar get ég fengið góða LANGA riffiltösku.
Riffillinn hjá mér er með frekar löngu hlaupi þannig að hann er of langur til að passa í þessar hefðbundnu töskur sem eru 120 cm að lengd.
Því vantar mig lengri tösku en hef verið í vandræðum með að finna tösku.
Er einhver sem veit um tösku?
Þær eru ekki til í Hlað, Vesturröst , Veiðihorninu eða Ellingsen síðast þegar ég athugaði ( ca 2 vikur síðan)
Þannið að ef enhver veit um aðra staði þá er það vel þegið að fá þær upplýsingar.
Annars er það þi stöðunni að tala við þá í Flugtöskur og láta smíða tösku fyrir mig
Re: Riffiltöskur
Posted: 12 Sep 2012 19:22
by Gísli Snæ
Mikið pælt í þessu líka Árnmar. Hef lengi ætla að hringja í Beco (
www.beco.is) því þeir virðast vera með umboðið fyrir Storm Case sem eru hágæða töskur. Athuga hvort að þeir flytji inn riffiltöskur þá svo að þeirra aðal "business" séu ljósmyndavörur.
Láttu mig amk vita ef þú athugar þar hvað þeir segja.
Re: Riffiltöskur
Posted: 12 Sep 2012 21:37
by skepnan
Sæll Árnmar, heima í "héraði" eða næstum því er Veiðiflugan (á Reyðarfirði) og þeir eru með Flambeau töskur sem að samkv. framleiðanda eru 133 sm á lengd (53,5 tommur). Eins er tvöfalda Negrini taskan hjá Hlað 133 sm. Kannaðu þetta amk, það getur varla sakað
kveðja Keli
Re: Riffiltöskur
Posted: 13 Sep 2012 07:57
by iceboy
Já það er spurnign um að athuga í beko.
Keli síðast þegar ég athugai í hlað þá var ekkert til sem var nogu langt en ég kiki samt að sjálfsögðu þangað þegar heilsan lagast nóg til þess.
Svo mun ég kikja við í veiðiflugunni þegar ég fer á héraðið, enda er ég á leið í Fljótsdalinn eftir helgi og aldrei að vita nema maður endi niður á fjörðum ef timi gefst til
Re: Riffiltöskur
Posted: 13 Sep 2012 09:21
by maggragg
Ég pantaði að utan tösku frá Tac-Force, en það var eina "mjúka" taskan sem riffillinn minn pasaði í, en hún er 52", meðan allar hinar voru um 50". Þetta er svokölluð "drag-bag"
http://tac-force.com/52strykerdragsystem.aspx
Keypti hana í gegnum OpticsPlanet
Re: Riffiltöskur
Posted: 13 Sep 2012 13:25
by skepnan
Sæll Magnús er þetta ekki svipuð taska og Skyttan.is er að flytja inn?
Svo var Veiðihornið með hálf-stífa byssupoka í yfirstærð, eru þeir ekki með þá ennþá?
Ég var í bölvuðum vandræðum með að fá harða tösku undir Howuna, engin var nógu djúp, fyrr en Hlað fékk nýja sendingu frá Negrini. Það getur nefnilega reynt á taugarnar að vera með vopn sem að er eitthvað utan við "kassan", þá fer allt í stóran búðing og enginn virðist eiga nokkuð sem passar
Vonandi finnur þú eitthvað bráðlega Árnmar.
Kveðja Keli
Re: Riffiltöskur
Posted: 13 Sep 2012 13:32
by maggragg
Sæll Keli
Þessi taska er örlítið lengri en taskan hjá Skyttan.is, þar sem það þrufti þessa auka tvær tommur til að koma rifflinum mínum í hana. Hefði annars tekið töskuna hjá Skyttan.is
En riffillinn hjá mér er líka leiðinlega langur, með mauser lás sem er long action, 27" hlaupi og hlaupbremsu framan á það

Re: Riffiltöskur
Posted: 13 Sep 2012 14:14
by Gísli Snæ
Hvernig eru þessir Drag bag annars að reynast. Hef bara notað harðar töskur undir rifflana mína. Lengi langað að fjárfesta í svona.
Re: Riffiltöskur
Posted: 13 Sep 2012 18:20
by maggragg
Bara fínt, kosturinn er að hægt er að setja þá á bakið og ganga með þá og svo eru allskonar hólf á þeim þannig að maður er með allt með sér...
Re: Riffiltöskur
Posted: 20 Sep 2012 09:42
by 257wby
Við hjá Sportvík flytjum inn töskur frá Megaline og Negrini.
Ef það er eitthvað sem við getum liðsinnt þér með þá endilega
hafðu samband,annaðhvort í síma eða E-mail.
Gsm. 8482760
E-mail. snjolaug.maria@sportvik.is
Kv.
Snjólaug og Guðmann