Strax farið að vinna í veiðilöggjöfinni á Alþingi
Posted: 14 Sep 2012 16:18
Á þriðja degi alþingis er búið að leggja fram eitt lagafrumvarp og eina þingsályktunartillögu.
Annarsvegar hafa Birgitta Jónsdóttir, Árni Þór Sigurðsson og Mörður Árnason lagt fram lagafrumvarp um breytingar á veiðilögum með það að markmiði að selir falli undir veiðilöggjöfina og verði ekki lengur útundan lögum. Ekki er farið út í almennar friðanir, en hinsvegar opnar það möguleikan á því.
Sjá má frumvarpið hér: http://www.althingi.is/altext/141/s/0046.html
Hinsvegar er þingsályktunartillaga um breytta skipan refaveiða á Íslandi og standa eftirtaldir þingmenn að henni: Ásmundur Einar Daðason, Gunnar Bragi Sveinsson, Vigdís Hauksdóttir, Birkir Jón Jónsson, Höskuldur Þórhallsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Einar K. Guðfinnsson, Ólöf Nordal, Jón Gunnarsson,
Guðlaugur Þór Þórðarson, Árni Johnsen.
Hljóðar hún svo:

Hægt er að sjá tillöguna með greinargerð hér: http://www.althingi.is/altext/141/s/0084.htmlAlþingi ályktar að fela umhverfis- og auðlindaráðherra að breyta framtíðarskipan refaveiða. Markmiðið verði að refastofninum verði haldið innan eðlilegra marka en svo það náist feli breytingarnar eftirfarandi í sér:
a. að refaveiðar verði ekki bannaðar á ákveðnum landsvæðum,
b. að teknar verði aftur upp greiðslur úr ríkissjóði vegna fækkunar refa,
c. að rannsóknir verði á hendi vísindamanna en veiðistjórnun, þ.e. skipulagning, stjórnun og leiðbeiningarþjónusta við veiðimenn, á hendi reyndra veiðimanna,
d. að samið verði við Samband íslenskra sveitarfélaga eða landshlutasamtök sveitarfélaga um að sjá um skipulagningu veiðanna og greiðslur til veiðimanna,
e. að greiðslur fyrir hlaupadýr og grenjavinnslu verði þær sömu um land allt.
Ráðherra leggi fyrir Alþingi fyrir 1. apríl 2013 frumvarp til laga um þau atriði sem krefjast lagabreytinga.