Page 1 of 1

Franchi með nýja hálfsjálfvirka

Posted: 14 Sep 2012 21:42
by Sveinn
Vesturröst var að koma með nýjar gerðir af Franchi í sölu, hálfsjálfvirka Franchi Affinity og svo bíður ný tvíhleypa við dyrnar, Franchi Instinct. Franchi Affinty kemur hér heima bæði svört (142 Kkr) og í camo, annaðhvort APG eða Max4 (báðar á 155 Kkr). Í Evrópu kemur hún líka í viðarskefti. Flottar. Snúningsbolti frá Benelli og framleiddar á Ítalíu (ekki í Tyrklandi) í sömu verksmiðju og Benelli enda systurfyrirtæki í eigu Beretta. Líkist Benelli M2 eða enn frekar B Comfort, magasínið eins, 4+1. Stóri munurinn er að Franchi A er með bakslagsgorminn utan um magasínið (eins og B Vinci), ekki í skeptinu, sem auðveldar allt viðhald, helmingur af öllu jammi er skítugur bakslagsgormur, segja fróðir menn. 155K fyrir þessi gæði lítur vel út, spurning hvernig þetta endist, sem er eini mælikvarðinn. Verst að maður veit ekki fyrr en eftir 10 ár ;)

Við höfum reyndar heyrt þetta áður, framleitt af dótturfyrirtæki Beretta, systurfyrirtæki Benelli, þá var það um Stoeger M2000, reyndist misjafnlega, sumar góðar, aðrar slæmar. Verðmiðinn annar fyrir Stoeger, endurspeglar kannski gæðaeftirlitið.

Nokkrir linkar, hefur fengið góða dóma í USA, menn sammála um að byssan kemur vel upp og að þú hittir:

Vesturröst

Guns and Ammo

Daily Caller

OutDoor Life

Re: Franchi með nýja hálfsjálfvirka

Posted: 14 Sep 2012 23:57
by Hentze
Er með Franchi Raptor með bakslagsskiptingu og hún er mjög góð, boðar gott fyrir þessa.