Ég tel að með það þá sé það líkt og margt annað.
Mikið að greiða en lítið að fá.

Rökin eru helst þessi, allavega eins og þetta snýr að mér.
Hvernig á að setja saman gjaldið, undir hverju stendur það, hvað er innifalið.
Fyrir utan hjól, bíl og kerru. Reikna með að það sé rukkað sérstaklega þá er búnaðurinn sem ég nota nærri 1,5m !
Tökum það aðeins saman.
Bakpoki (Niðri á fjörðum ef þarf að úrbeina) Töskubeli á heiðum til að geta hoppað á hjól 25 Þ
Tastöðvar, til að geta verið í sambandi við aðra. (Er með 4 stk til að dreifa á hópinn) 25 Þ
VHF stöð öryggistæki. Er með hana á fjörðunum ekki á heiðunum. 25 Þ
GSM nauðsynlegur til að tekka sig inn og hafa samband við aðra gæda 75 Þ
GPS tæpi helst með korti og trakki af öllum slóðum 100 Þ
Góður sjónauki í þesssu er bara það besta nógu gott! 180 Þ
Fjarlægðarmælir vandaður sem mælir almennilega langt! 75 Þ
Gönguskór alvöru skór ert í þeim dögum saman. 50 Þ
Fatnaður annað smálegt, hausljós hnýfar grisjur ólar töfrateppi. 75 Þ
Scope 75 Þ
samtals ca 700 þús.
Rifill, ég nota blaser en hvað sem menn nota þá duga ekki gamlir mauserar. Ef ég þarf að skjóta þá er það langt og allt komið í vitleysu! Blaserinn kostar um 500 þ + 60 í festingar og tæplega 500 þ í Zeissinn ofan á hann! Segjum samtals lítil milla

Búnaður fyrir ca 1,5 m. kr afskrifað á 7 árum hugsa ég að sé sanngjarnt. Sjónaukar hægast, hlaup pg skór hraðast! 15 % af 1,5 = ca 225 þúsund á ári!
Því þarf að deila á veidda daga. Þeir sem fara oftast ná kannski 20-30 leyfum.
Þú getur ekki bókað nema ca annanhvern dag. Ef þú færð þoku eða lélegan veiðimann þá lendirðu í áhlaðanda og vésini.
Svo fyrir utan Þetta hvað á þá dagurinn að kosta! Miðum við við iðnaðarmann í 10 klst vinnu.
(sennilega meðaldagur nokkrir enda stuttir en aðrir langt fram á nótt)
10*5000 + vsk = 60 þ kall dagurinn áður en farið er að taka tillit til þess að ekki er hægt að bóka nema annan hvorn dag.
Auðvitað má bæta ofan á það verkfæragjaldi til að afskrifa græjurnar. (10-20 þ á dag)
Ferðakostnaði austur. Fæði og uppihaldi. ( 15 þ kall á dag í gistingu og fæði fyrir mig ca!)
Þannig að ef allt er eðlilegt þá þerf ég nærri 75-90 þ á dag.
Menn eru að rukka ca þriðjungin af því! 30-40 kall á dag.
Svo mín niðurstaða er einföld.
Sel mig út í 2-3 klst sem verkfræðing fyrir hér í bænum fyrir daggjaldinu.
Fer fáa túra á ári af því mér finnst þetta gaman. Halda mér í formi.
Þá skiptir ekki öllu máli hvað ég fæ greitt.
Meira atriði að vera með alvöru veiðimenn, vini eða vandamenn. Sé ekki ástæðu til að gefa öðrum þjónustuna.

Þeir einir geta haft soldið upp úr þessu sem eru að leiðbeina heiman frá hjá sér með lágmarkskostnaði. Helst selja mönnum gistingu og verkun líka.
Við þessir veiðifíkklar getum aldrei staðið undir svona vinnu. Við eigum því að láta þá sem það geta gera það. En í guðanabænum ekki rugla mér saman við suma pappakassana sem eru í hópi leiðsögumanna. þó ég fari orðið sjaldan. Ástæða þess er einföld. Ég hef bara ekki efni á því.
