Berger að koma með nýjar SAAMI veiðikúlur
Posted: 19 Sep 2012 08:52
Berger var að tilkynna að þeir væru búnir að hanna nýjar veiðikúlur sem eru hannaðar fyrir SAAMI staðla. Fyrir þá sem ekki vita hvað það þýðir þá er átt við að kúlurnar eru hannaðar til þess að virka með veiðirifflum, það er að þær eiga að virka með stöðluðum "chamberum" og komast í magasín.
Hefðbundnu VLD kúlurnar hjá þeim eru svokallaðar VLD kúlur sem eru mjög langar og bæði getur verið erfitt að finna "réttu" hleðsluna og svo komast þær sjaldnast í magasín vegna lengdar.
Þessar nýju kúlur byggja á hybrid tækni Berger, en þeir hafa gefið út nokkar hybrid kúlur, sem hafa kosti bæða VLD og hefðbundinna kúlna, þ.e. að þær eru bæði með tvískiptum boga á oddi, bæði tangent og secant en það er lengri saga. Þær kúlur hafa hentað vel í fleirri gerðir riffla en hingað til hafa þær aðeins fengist sem markkúlur, þ.e. ekki hentað til veiða.
Þessar nýju kúlur hafa því veiðieiginleika VLD kúlnanna, en henta fyrir hefðbundna veiðiriffla og hafa þeir náð eins góðum flugstuðli og hægt er miðað við að hafa þurft að stytta þær til að virka með SAAMI stöðlum. Þar sem Bryan Litz hannaði þessar kúlur þá býst ég við að BC stuðullinn á þeim á eftir að koma á óvart og skjóta öðrum sambærilegum veiðikúlum ref fyrir rass í þeim efnum.

Ekki eru komnar frekari upplýsingar um þyngdir í öllum kaliberum eða spekkar en hérna eru smá upplýsingar.
Frumgrein: http://02b0516.netsolhost.com/blog1/201 ... c-bullets/
Og meira: http://bulletin.accurateshooter.com/201 ... g-hybrids/

95. graina 6mm kúla virðist allavega vera að koma á markaðinn.

Grein sem útskýrir munin á tangent, secant og hybrid eftir Bryan Litz:
http://bulletin.accurateshooter.com/201 ... -explains/