Page 1 of 1

Friðland við Varmárósa, Mosfellsbæ

Posted: 19 Sep 2012 23:19
by maggragg
Hérna er dæmi um dæmigerða stjórnsýslu þegar kemur að náttúruvernd.

http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?I ... b37f7d5656

Ég skil ekki það lögmál sem er í gangi í dag að ef eitthvað er friðland þá sé sjálfgefið að skotveiðar séu bannaðar. Samkvæmt þeim alþjóðasamingum sem við erum aðilar að þá er það ekkert lögmál að veiðar þurfi að vera bannaðar ef þær eru sjálfbærar. Ég þekki ekki þetta tiltekna svæði sérstaklega og það geta svosem verið góð og gild rök fyrir banninu en þessi friðlýsing er sett á til þess eins að vernda plöntu, svokallað fitjasef sem er á válista. Þarmeð er allt friðað.

Þetta er ekki einsdæmi heldur venjan hér á landi og vill ég að Skotvís beiti sér fyrir því að veiðar verði því aðeins bannaðar í friðlandi, séu veiðar ekki sjálfbærar, í stað þess að þær séu sjálfkrafa bannaðar í hvert skipti sem eitthvað er friðlýst vegna einhverra náttúrufyrirbæra eða plantna.

Re: Friðland við Varmárósa, Mosfellsbæ

Posted: 19 Sep 2012 23:48
by Gisminn
Sammála þér Magnús