Page 1 of 1
Accuracy and Precision for Long Range Shooting
Posted: 21 Sep 2012 22:30
by maggragg
Var að panta mér þessa bók.
http://appliedballisticsllc.com/book2.html
Miðað við annað efni sem komið hefur frá Bryan Litz þá þessi bók eftir ekki eftir að klikka. Fræðin bak við kúluferlana er eitt af mínum áhugamálum...

Bryan Litz
Re: Accuracy and Precision for Long Range Shooting
Posted: 22 Sep 2012 00:20
by TotiOla
Virkilega áhugaverð bók þarna á ferð, út frá upplýsingunum á þessari síðu sem þú vísar í þarna að dæma. En það verður að segjast að höfundurinn, greyið, lítur ekki út fyrir að vera hæfur að umgangast vopn á þessari mynd
Ég veit, maður ætti að skammast sín. Það á ekki að dæma bókina af kápunni. En þetta er bara of gott til þess að sleppa því. Ég má líka gera svona grín þar sem ég myndast sjálfur svona líka helvíti illa. Vil samt meina að þetta sé myndtækninni að kenna

(AFNEITUN)
Re: Accuracy and Precision for Long Range Shooting
Posted: 23 Sep 2012 13:21
by maggragg
Hehe, hann hefur myndast svolítið illa. Þessi húfa er líka ekki að gera sig... Hann lítur ekki úr fyrir að vera rocket-scientist, þótt hann sé það bókstaflega...
Re: Accuracy and Precision for Long Range Shooting
Posted: 02 Dec 2012 20:47
by Kristmundur
Sælir eg er búin að fara einusinni í gegnum hana
og það er svo sannarleg margt sem kemur á óvart
En maður verður að lesa hana sem nokkurskonar
uppsláttarrit þegar vandamál koma upp
Re: Accuracy and Precision for Long Range Shooting
Posted: 05 Dec 2012 00:16
by maggragg
Ég verð bara að viðurkenna að ég hef ekki ennþá lesið í gegnum bókina enda búið að vera nóg að gera hjá mér þetta misserið. Það bíða fjórar bækur um þetta áhugamál eftir lestri, þessi bók, nýja Berger hleðslubókin, Refaskyttan hugljúfa og svo bókin Á refaslóðum. Vonandi verður tími eftir próf og fram yfir jól
