Page 1 of 1
Er lægð yfir skyttum....
Posted: 30 Sep 2012 17:00
by Tf-Óli
Vefurinn eithvað rólegur um þessar mundir.
Sjálfur er maður hálf ónýtur að fara til veiða. Er þar fyrst og fremst vinnunni um að kenna.
Þó felldi ég nokkrar endur um helgina.

- DSCN0899.JPG (192.63 KiB) Viewed 4536 times
Og Tikkan er ekki lengur Lite í cal 6.5x55, heldur Lothar Walter varmint í 6.5x284
Svo er refakofinn í uppherslu fyrir veturinn, svo að maður er nú með smá lífsmarki.
Re: Er lægð yfir skyttum....
Posted: 30 Sep 2012 20:11
by kra
Brá mér í gæs í vikunni. Aflatölur voru 17-69-24

Gekk vel, hefði verið gaman á besta deginum að hafa aðra skyttu með sér. Mikið flug þá
Re: Er lægð yfir skyttum....
Posted: 30 Sep 2012 21:27
by maggragg
Er búin að kíkja í önd núna í nokkur skipti í völdum pollum, yfir gerfifuglum og það hefur bara ekkert komið ennþá af ráði. Er ekki kominn með neinn einasta fugl ennþá, en ég er nú ekki stressaður þar sem andatímabilið er rétt byrjað.
Virknin á spjallsvæðinu fer svolítið í bylgjum, stundum dettur allt í dúnalogn, oft tengt helgum, eða ákveðnum tímabilum.
Re: Er lægð yfir skyttum....
Posted: 30 Sep 2012 21:38
by iceboy
Ég fór heim í sveitina í smalamennskur og var að sjálfsögðu með vopnin með austur.
Ég skaut 6 gæsir, á ca 150-200 metrum með rifflinum, svo skaut ég einar 14 endur.
Svo skrapp ég aðeins á skarfaveiðar i dag, við náðum 3 skörfum í dag.
Þetta er svona veiðin síðustu 10 daga, hef svosem ekki haft tíma í mikla veiði svona þegar verið er í fjárstússi
Re: Er lægð yfir skyttum....
Posted: 01 Oct 2012 10:14
by Dr.Gæsavængur
Sælir..
Get sagt fyrir mitt leiti að ég skoða töluvert minna þessar veiðisíður svona yfir háveiðitímann. Ekki það að maður sé samt alltaf svo upptekinn að veiða. Þetta bara atvikast þannig.. Áður en veiðitímabil byrja er spennan mikil og maður eyðir tíma á netinu skoðandi spjallsíður, myndbönd og greinar.. Svo fara menn bara út að skjóta.. er það ekki
En ótrúlega flott breyting á Tikkuni TF-ÓLI! Var sjálfur að hugsa eitthvað svipað fyrr á árinu. Nú væri bara flott að sjá hann í nýju skepti
Og Tikkan er ekki lengur Lite í cal 6.5x55, heldur Lothar Walter varmint í 6.5x284
Annars hefur maður farið aðeins út með hólkinn. Nú eru Endur, Heiðagæs og Helsingi í frystinum. Hef ekki smakkað Helsingja áður svo það verður gaman! Svo tók félagi minn hreindýr um miðjan sept með rifflinum mínum, góð ferð. Þetta tímabil hefur farið mjög vel af stað..
Re: Er lægð yfir skyttum....
Posted: 01 Oct 2012 10:21
by E.Har
Er altaf einhvað að brasa.
Ekki komist í alvöru grágæs en búin að vera að fikta við heiðargæs , önd og mink eftir að hreindyratímanum lauk.
Veit einhver hvar ég get fengið ódýrt korn.
Ósýrt og óvalsað má alveg vera ný þreskt. Get alveg þurrkað sjálfur.
Vantar bara smá slatta til að fita endur fyrir veturinn.
Re: Er lægð yfir skyttum....
Posted: 01 Oct 2012 11:01
by Veiðimeistarinn
Til hamingju með nýju Tikkuna Óli, þú ert lang flottastur
Það verður gaman að sjá hvernig hun reynist á hreindýrinu á næsta ári
Það er svona að fá ekki hreindýraleyfi, þá er hægt að setja svona breytingu á fjárlögin hjá sér

Re: Er lægð yfir skyttum....
Posted: 01 Oct 2012 13:04
by Tf-Óli
Takk fyrir góða kveðju Veiðimeistari.
Ég hef það sterklega á tilfinningunni að við munum fara saman til hreindýraveiða næsta haust.
Atli, ég keypti varmint skefti hér á vefnum fyrir lítið og það er verið að bedda lásinn ofaní það í þessum töluðu orðum. GRS er svo framtíðin, en það verður að bíða aðeins.
Re: Er lægð yfir skyttum....
Posted: 04 Oct 2012 21:07
by Veiðimeistarinn
Mönnum hefur orðið tíðrætt um skefti og breytingar á rifflum hér upp á síðkastið, Óli búinn að breyta sinni Tikku úr 6,5x55 í 6,5-284 Lothar Walther með Varmint skefti.
Gísli Snæ. er kominn með GRS skefti á sinn riffil.
Set hérna inn myndir af rifflinum hans Snorra bróður sem er í breytingum, það er Mauser 98 Otterup var 6,5x55 en er nú kominn með Lothar Walther hlaup í 6,5-284 mussle brake eftir Arnfinn sem setti græjuna saman.
Síðan fór Svenni vinur Snorra höndum um Otterupskeftið og shinaði það upp, límdi neðan á pístol gripið og tók úr fyrir þumalvöðvanum (GRS hvað).
Re: Er lægð yfir skyttum....
Posted: 04 Oct 2012 21:09
by Gísli Snæ
Ekki slæmt, ekki slæmt
Já segðu - GRS hvað

Re: Er lægð yfir skyttum....
Posted: 04 Oct 2012 21:45
by maggragg
Flott skeptisbreyting, það er mikill munur að skjóta úr riffli sem hefur svona anatomsikt skepti sem passar vel í hendi
