Page 1 of 1

Hraði

Posted: 01 Oct 2012 21:06
by Eggert
Heilir og sælir spjallverjar.
Langaði að forvitnast um hvort einhver ætti forrit til að reikna út hraða á kúlu.
Er með 243.win með 22"hlaupi.
Var að hlaða Sierra 100.gr Game king með 45,5 gr af n-560.Vith.c.o.l. 67,4(sierra mál)
Er 0,9 mm frá rílum Hækkar eða lækkar þrýstingur ef ég fer nær ?
Kveðja
Eggert Bergsveinsson
eggertb1@gmail.com

Re: Hraði

Posted: 01 Oct 2012 21:16
by Gisminn
Hann hækkar ef þú ferð nær og Magnús eða aðrir góðir hér segja þér hraðan

Re: Hraði

Posted: 01 Oct 2012 21:54
by gylfisig
Hraðinn með þessari hleðslu, og kúlu, er um 2900 ft.
Tiltölulega mild hleðsla, samkv. Quickload.
Þrýstingur liðlega 50,000 psi
Max þrýstingur fyrir þetta hylki er tæpl. 60200 psi.
Það, að færa kúlu nær rillum, þarf ekki endilega að auka pressu. Þegar kúlan færist upp úr hylkinu, þá er líka aukið loftrými í því, sem lækkar pressu. En að sjálfsögðu eykst pressan ef þú ert alveg við að snerta, eða snertir rillurnar.

Re: Hraði

Posted: 04 Oct 2012 21:49
by maggragg
Eins og Gylfi segir þá minnkar þrystingurinn eftir því sem kúlan situr framar, þangað til hún er við eða snertir rílur. Þá myndast töluverður aukaþrystingur sem þarf að gera ráð fyrir ef maður er að setja kúluna framar...