Page 1 of 1
Kúluþyngdir í Cal 22-250
Posted: 10 Oct 2012 00:06
by hgudjons
Hafið þið prufað að hlaða 60 gr kúlur í þetta cal? T.d. 60 gr hornady V max?
og hafið þið náð góðum árangri með 55 gr kúlum?
kv
Hörður Guðjóns
Re: Kúluþyngdir í Cal 22-250
Posted: 10 Oct 2012 10:27
by Garpur
Sæll, 55 grs hefur komið vel út í þá riffla sem ég hef hlaðið i af þessu cal. nema einn eða tvo Sako.
Ég hef ekki prófað 60 grs. en það fer eftir twistinu hvort hann ræður við það, annars er bara að prófa nokkur skot með þekktri hleðslu og sjá hvort ´ann étur þetta ekki.
Re: Kúluþyngdir í Cal 22-250
Posted: 10 Oct 2012 18:12
by gylfisig
Þeis Sako rifflar sem ég prófaði 55 grs kúluna í, voru ekki að höndla hana. Held að hún sé of löng fyrir twistið í þeim.
52 grs Sierra mk var sú kúla sem bar af, í alla 22-250 riffla sem ég hef hlaðið í.
50 grs Nosler bt er ég viss um að sé mjög heppileg líka.
Ég prófaði 60 grs Sierra í custom smíðaðan riffil hjá mér, (14 twist) en það var bölvað vesen. Reyndar var það 22-250 AI en ég gafst upp á þessari 60 grs kúlu, og hélt mig við 52 Sierruna.
Tel 55 grs fmj hæpna í 14 twistið.
Re: Kúluþyngdir í Cal 22-250
Posted: 10 Oct 2012 23:33
by Hjörtur S
Gylfi þekkir þetta. Ef twistið er 1/14 þá þarf kúlan að vera <= 52gr. Ef það er 1/12 þá undir ca 60gr.
Re: Kúluþyngdir í Cal 22-250
Posted: 11 Oct 2012 12:59
by hgudjons
þakka fyrir svörin.
Hef náð góðum árangri með 50 gr bt og 52 gr kúlum og þokkalegum grúppum með 55gr fmj en svo hefur 55 gr bt frá sierra enganveginn verið að gera sig. Var svo að prufa að skjóta gömlum 60 gr
kúlum/skotum frá hornady og það kom merkilega vel út.
Þetta er gamall sako forester með twist 1:14
kv
Hörður Guðjóns