Page 1 of 1
Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 11 Oct 2012 02:51
by dain
Daginn,
Ég var að fá skotvopnaleyfi og langar að fjárfesta í fyrsta rifflinum - þetta á að vera framtíðareign.
Ég hef mikið skoðað markaðinn og hugsa ég að Brno (eða CZ eins og þeir heita víst í dag) eða Sako verði fyrir valinu.
Hann verður að hafa skiptanleg hlaup þar sem mig langar bæði að skjóta .17 og .22 cal.
Það sem ég hef fundið hingað til er Sako riffill hjá Ellingsen en er í dýrari kantinum eða um 125.000 kr og auka hlaup á 50.000 kr á meðan ég get fengið mjög öflugan CZ 455 á 85.000 kr og auka hlaup á 35.000 kr.
Þeir 4 sem koma aðalega til greina eru:
1.
Sako Quad .22LR (veit ekki nákvæmlega model nr.)
- 124.900 kr
- 49.900 kr auka hlaup
2.
CZ 455 THUMBHOLE
- 106.900 kr
- 34.900 kr auka hlaup
3.
CZ 455
- 86.000 kr
- 34.900 kr auka hlaup
4.
Savage 17HMR - ekki með frekari uppls.
- 95.000 m/ Sjónauka og tvífæti
- Notaður
Svo hvað segja menn - hvað myndu þið nú taka?
Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 11 Oct 2012 07:10
by Benni
Hef skoðað báða þessa riffla (Sako og CZ) og átt 2 CZ 452 riffla (mjög svipaður 455 en ekki skiptihlaup) og fyrir mitt leiti er CZ málið.
Ekki það að Sakoinn sé ekki flottur riffill en CZ er bara mikið fallegri riffill, eru hörku nákvæmir og vel smíðaðir!
Ég tæki 455 thumbhole og fengi mér betri sjónauka fyrir mismuninn.
Savage riffillinn er svosem fínn riffill en ekki í sama klassa og CZ eða Sako quad og sem framtíðar eign ekki eins spennandi kostur að mínu mati!
Set hér link á síðu sem selur allskonar "upgrade" fyrir bæði CZ og Sako quad ef þig langar að bæta riffilinn seinna meir.
http://www.diproductsinc.com/Products.aspx?CAT=3600
Ekki að þeir séu það slæmir að það verði að breita þeim, þetta er meira útlits breitingar og til að losna við plast hluti úr rifflunum eins og stikkið sem heldur utan um magasínið.
Og hér er linkur á síðu sem er með svo gott sem endalausann fróðleik um allt sem tengist Rimfire rifflum
http://www.rimfirecentral.com
Svo er bara hausverkurinn að velja sjónauka

Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 11 Oct 2012 10:05
by Veiðimeistarinn
dain, endilega koma fram undir fullu nafni, það er vaninn hérna.
Það er fínt sístem á þessum vef sem gefur möguleika á að setja nafnið í fasta kveðju undir skrifin hérna, alger snilld, endilega nota sér það.
Mér finnst alltaf eins og ég sé að tala við menn með gæsahettu á hausnum þar sem aðeins grillir í augun þegar ég er að lesa nafnlausa pósta hérna

Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 11 Oct 2012 12:43
by konnari
CZ 455 ekki spurning !
Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 11 Oct 2012 12:50
by 257wby
Sæll,
Hvort sem þú velur CZ 455 eða Sako Quad þá ertu kominn með virkilega góða græju í hendurnar,
Savage rifflarnir eru ágætir en að mínu mati samt þrepinu lægra í gæðum.
Kv.
Guðmann
Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 11 Oct 2012 14:22
by dain
Veiðimeistarinn wrote:dain, endilega koma fram undir fullu nafni, það er vaninn hérna.
Fullt nafn komið í undirskriftina, usernameið er í raun stytting á því.
En takk fyrir frábær svör piltar, CZ verður fyrir valinu!

Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 11 Oct 2012 15:09
by Veiðimeistarinn
Sæll Daníel.
Velkominn hérna.
Ég hef alltaf verið hrifinn af þumalholu pistolgrip skeftinu á rifflum, það hentar miklu betur fyrir hendina þegar tekið er í gikkinn, höndin er miklu óþvingaðri þegar hún er í svona skammbyssugripi, greipin nánast í lóðrettri stöðu, þannig fæst afslappaðri skotstaða.
Þá liggur hægri höndin (hjá þeim rétthentu) öll á jörðinni eða borðinu þegar miðað er og vinstri höndin er undir afturskeftinu (ef það er tvífótur undir græjunni eins og ég reikna með) til að stilla það af svo það sitji betur við öxlina.
Ef riffillinn er hins vegar með hefðbundið skefti kemur vindingur á handlegginn um únliðinn og aðeina olnboginn snertir jörðina eða borðið, þá verður miðið alltaf þvingaðra og skotið ekki eins nákvæmt og það getur verið annars.
Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 11 Oct 2012 18:39
by Gisminn
Svo ég blandi mér í umræðuna þá átti ég þennan riffil sem er númer 4 og er hann fanta nákvæmur og feldi nokkuð margar gæsir með honum á færunum 70-140 metrar og það virtist ekki skipta nokkru máli hvaða tegund af skotum var notuð það eina sem breyttist var að 20 graina kúlan var örlítið með hærri ákomu en 17
Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 16 Oct 2012 21:30
by jonh
Eru menn semsagt að hrifnari af CZ heldur en Sakonum? Hvar fæst Sako quad á klakkanum?
Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 17 Oct 2012 18:18
by Stebbi Sniper
Ef þú ert ekkert að spá í peninginn þá er SAKO-inn alltaf betri byssa að mínu mati. Ég á bæði SAKO og CZ 452 og SAKO-inn er að skjóta mikið betur, en þá erum við að tala um mjög litla skífu á 50 metra færi.
Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 20 Oct 2012 20:49
by jonh
En segid mér thá annad, hvenaer er thad sem thungt hlaup er ad gera eitthvad fyrir mann? er thad eftir 100skot á 2mín eda ? Er thad eitthvad sem skiftir hinn venjulegan skotveidi og aefingamann máli hvort ad madur sé med thungt hlaup eda venjulegt?
Re: Fyrsti riffillinn - framtíðareign.
Posted: 20 Oct 2012 21:48
by Veiðimeistarinn
Þungt hlaup, oftast meiri stöðugleiki = meiri nákvæmni
