Page 1 of 1

Skífa 001

Posted: 16 Oct 2012 21:37
by Gunnar Óli
sælir/sælar

bara svona til að gera eitthvað...

fyrsta skífan sem ég man að taka mynd af ;)
myndin tekin á síma og eina viðmiðið sem var nærri var tappi af gosflösku sem einhver hafði skilið eftir á skotsvæðinu...

og þar sem að ég hef litla sem enga reynslu í riffilskytteríi og enga leiðsögn fengið (ekki verið nægilega duglegur að sækjast eftir henni) þá er ég bara nokkuð bjartsýnn á framhaldið...
skífa 001
skífa 001
26092012.jpg (53.16 KiB) Viewed 3637 times

Re: Skífa 001

Posted: 16 Oct 2012 21:56
by gylfisig
Þessir Remington rifflar skutu alltaf glettilega vel, en mikið andskoti voru þeir gikkþungir.
Þetta er bara ágæt grúbba hjá þér. Prófaðu að skipta yfir í 52 grs Sierra MK kúlu. Ég gæti trúað að klasinn myndi þéttast aðeins.

Re: Skífa 001

Posted: 16 Oct 2012 22:11
by Gunnar Óli
Sæll Gylfi

Já gikkþungur var hann, en er kominn með Timney gikk núna.

Er að bíða eftir skotum sem verið er að hlaða fyrir mig, verður gaman að sjá hvað gerist.
Veit að vísu ekki hvaða kúlur hann setur í fyrir mig en ég treysti hleðslumanninum betur en sjálfum mér til að meta það..

Má til gamans geta að á rifflinum situr hræ-ódýr sjónauki frá Barska 6-24 (nota 12-14 * stækkun)

Re: Skífa 001

Posted: 16 Oct 2012 22:18
by gylfisig
Set til gamans inn mynd af tveimur grúppum sem skotnar voru með Jalonen cal 6 Br með HV Krieger hlaupi.
Kúlan 68 Berger og færi 100m.
Kíkir: 10-50x 60 Sightron
Ég skaut vinstri grúppunn i( 7 skot), í gegnum 308 kúlugat, sem stækkaði held ég, ekki neitt. Hægri grúppan var örlítið stærri, 5 skot.
Það var dauðalogn.
Held að þetta séu minnstu grúppur sem ég hef skotið.

Re: Skífa 001

Posted: 16 Oct 2012 22:28
by Gunnar Óli
Já sæll Gylfi

Þetta er nú bara til að lækka í manni rostann :D

Hvur veit nema þetta gerist einhvern tímann hjá manni?

Re: Skífa 001

Posted: 16 Oct 2012 22:32
by gylfisig
Þetta er fínt hjá þér. Það er ekki líku saman að jafna. Mjög ólíkir rifflar. Annar léttur veiðiriffill, og hinn nökkvaþungur, sérsmíðaður, og með kíki sem stækkar 50 sinnum.

Re: Skífa 001

Posted: 16 Oct 2012 23:01
by Gunnar Óli
Já ég er sáttur, en alltaf gott að hafa sér betri menn/konur til fyrirmyndar!
Enda hvernig öðruvísi er hægt að bæta eigið ágæti ;)

Re: Skífa 001

Posted: 24 Nov 2012 10:20
by Gunnar Óli
sælir/sælar

smá "update"!

mældi til gamans kóktappa og er hann 30 mm (MOA 29mm @ 100m)

héðan í frá verður kóktappi eða tíkall í töskunni til að teikna eftir ;)
pælingar meðan ófært er á skotsvæði :(
pælingar meðan ófært er á skotsvæði :(
26092012.jpg (55.02 KiB) Viewed 3408 times

Re: Skífa 001

Posted: 24 Nov 2012 11:16
by maggragg
Sniðug hugmynd með tappan! Hefurður skoðað forritið OnTarget ?

Re: Skífa 001

Posted: 24 Nov 2012 11:23
by Veiðimeistarinn
Gunnar, hvað gerðir þú við tappann :?:
Sérðu ekki að það eru verðlaun í honum :!:

Re: Skífa 001

Posted: 25 Nov 2012 03:03
by Gunnar Óli
sælir/sælar

nei Maggi eða Magnús (veit ekki hvort skal kalla þig) hef ekki skoðað þetta forrit.
ertu að nota það?

Sigurður eða Siggi (veit ekki heldur hvað skal kalla þig!)
þó ég sé nú ekkert nein svaka skytta þá ætla ég nú ekki að fara að hengja mig á einhverja happa gripi til að geta svo kennt þeim um þegar ílla fer :)

Góli er sinnar gæfu smiður
gagnast lítt það happa!
Siggi það er sárt og miður
ef treysta þarf á tappa

ps. er kallaður Góli meðal jafningja (G.Óli = Góli)

Re: Skífa 001

Posted: 25 Nov 2012 12:15
by maggragg
Ég á þetta forrit, reyndar virkar það ekki núna en þetta er braðsniðugt sé maður mikið að spá í grúppum því maður getur skannað skotskífuna í skanna og merkt svo inn kúlugötin og fær nákvæmar upplýsingar um grúppuna. Gott ef maður er mikið að deila grúppum eða bara að stútera sína eigin nákvæmni... Má kalla mig Magga eða Magnús :)

Re: Skífa 001

Posted: 26 Nov 2012 12:57
by Stebbi Sniper
Sæll Magnús

Ertu með 1,10 fríu útgáfuna eða 2,10. Ég hef aðeins verið að nota fríu útgáfuna og finnst hún alveg virka fínt, en er að spá í það hvað maður fær með 2,10.

Re: Skífa 001

Posted: 26 Nov 2012 13:34
by Veiðimeistarinn
Góli, Siggi er alveg nóg fyrir jafningja en þeir sem bera ofurvirðinu fyrir mér nota Sigurður :lol:

Þú hittni ekki þurftir gefna,
þykknar samt í kappanum.
Vildi aðeins við þig nefna,
vinnninginn í tappanum.

Re: Skífa 001

Posted: 27 Nov 2012 21:16
by maggragg
Stebbi, ég á 2.10 útgáfuna, en svo þegar ég skipti um tölvu virkaði ekki gamli kóðinn og það hefur gengið illa að fá nýjan. Þannig að maður verður að eiga afrit af forritnu þegar maður fær það.

Það er miklu meiri stuðningur við metrakerfið sem ég sá mest í þessu. Man ekki allveg hvað var fleirra, en þetta er snilldar forrit þegar það virkar :)