Page 1 of 1
Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 22 Oct 2012 11:02
by Veiðimeistarinn
Set hérna inn til gamans nokkrar gerðir af gripum á riffilskeftum.
Endilega setja inn fleiri myndir, alltaf gaman að skoða og spekulera.
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 22 Oct 2012 12:36
by 257wby
Sveinn Hólm er greinilega listasmiður miðað við útlitið á skeptunum

Ég hef voðalega gaman af svona föndri,er að dunda við Otterup 22lr þessa dagana og vonast til að
hann verði tilbúinn fyrir jól.
Kv.
Guðmann
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 22 Oct 2012 22:34
by kra
Hér er GRS long range skepti sem HLAÐ er að selja
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 23 Oct 2012 08:44
by skepnan
Sælir, hérna er Howan mín með Blackhawk talon thumphole skeptinu. Viðurinn er nú altaf fallegri heldur en karbon og plast. En þar sem þú varst að spá í gripunum Sigurður, þá er virkilega gott grip á þessum skeptum. Það eru plötur á gripflötnum sem að hægt er að losa og skiptanleg riffluð gúmí fyrir gripið, getur valið um einhverjar stærðir af gúmíi. Algjört "möst"


- howa.gif (126.06 KiB) Viewed 9045 times
Kveðja Keli
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 23 Oct 2012 09:20
by Garpur
Gaman að sjá þetta, eru ekki einhverjir sem geta bætt við flóruna.
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 23 Oct 2012 19:38
by kra
Og hér er Stiller 7mm STW í Mcmillan A5 skepti
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 23 Oct 2012 19:58
by kra
Artcic Eagle 6mm PPC í Mcmillan EDGE skepti
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 23 Oct 2012 19:59
by kra
Stiller Predator 6,5x47 í KKC skepti
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 27 Nov 2012 22:15
by Veiðimeistarinn
Hérna koma myndir af Mauser Otterupnum sem myndin er af hérna efst í þræðinum, fullkláruðum.
Verkið lofar meistarann stendur einhvernsstaðar skrifað, það á vel við hérna finnst mér.
Sveinn Hólm Sveinsson á Hornafirði tok þetta skefti í gegn fyrir Snorra bróðir minn, en Snorri keypti þennan Otterup í 6,5x55 fyrir rúmu ári síðan.
Síðan er komið á hann Lothar Walther hlaup í 6,5-284 og búið að breyta skeftinu, það var aðeins tekið niður fyrir þumalvöðvanum hægra megin og markað fyrir fingrunum vinstra megin á skeftinu og engu bætt við nema neðsta liðnum á pistolgripinu sem var límdur þar neðaná.
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 28 Nov 2012 20:14
by Þ.B.B.
Ég verð að lýsa aðdáun minni á þessum Mauser og Sveini Hólm Sveinssyni, þessi riffill er listaverk.
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 28 Nov 2012 20:29
by Gísli Snæ
+1 á það - glæsilegur riffill
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 30 Nov 2012 00:08
by Veiðimeistarinn
Nokkur riffilskefti eftir Svein Hólm Sveinsson. Efst er skeftið sem var smíðað upp úr Otterup skeftirnu, hin þrjú neðar eru smíðuð af Sveini frá grunni,
Efstur er Mauser Otterup 6,5-284, með Meopta Meopro 6-18x50
Næstur er Toz 22LR, með Simmonz 6-20x50
Svo er Tikka T3 Varmint 6,5x55, með Leupold 8-25x50
Neðst er Savage 22LR, með Simmonz 6-20x40
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 03 Dec 2012 16:50
by ottarari
Hvaða verð er á svona skeptum frá Richards Microfit Gunstocks hingað heim komin
kv Óttar Ari Gunnarson
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 03 Dec 2012 17:17
by Benni
Fer soldið eftir hvernig skepti þú pantar en mitt endaði í rúmum 50þ með öllu ss. uþb skeptisverð x2 þegar öll þessi gjöld hér heima eru smurð á það....
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 03 Dec 2012 17:19
by iceboy
Ég tók inn 2 skepti í einu og kostuðu þau 68000 kr hingað komin.
Semsagt 34000 kr hvort skepti
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 03 Dec 2012 17:22
by ottarari
ok takk
kv Óttar Ari
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 03 Dec 2012 22:50
by Morri
Sælir
Flott skepti hér á ferðinni.
Sérstaklega er ég hrifinn af þessum Mauser sem Siggi veiðimeistari setti inn mynd af, eftir Svein Hólm.
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 05 Dec 2012 10:37
by Veiðimeistarinn
Óttar Ari, ég tók bláröndótta skeftið frá Richards Microfit Gunstocks sem er á myndinni hérna fyrir ofan gegn um skyttan.is það kostaði um 50 þúsund með öllu til þeirra komið, síðan fékk ég VSK endurgreiddan svo það er um 40 þúsund til mín komið.
http://www.rifle-stocks.com/
Hvernig URL a ég þessa slóð undir Richards Microfit Gunstocks?
Já Sveinn Hólm er snillingur í höndunum, hann gerbreytti efnismiklu skeftinu á Mauser Otterup rifflinum, svona efnismikil skefti gefa snillingum eins og Sveini gríðalega möguleika til útfærslu

Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 14 Jun 2013 14:26
by petrolhead
Sælir félagar.
Set hérna inn mynd af otterup skefti sem er búið að fá minni háttar plastic surgery, smá botox og eina umferð af farða
MBK
Gæi
Re: Myndir af nokkrum gerðum riffilskefta
Posted: 14 Jun 2013 15:10
by Ágúst Á
Veiðimeistarinn wrote:Set hérna inn til gamans nokkrar gerðir af gripum á riffilskeftum.
Endilega setja inn fleiri myndir, alltaf gaman að skoða og spekulera.
mikið svakalega langar mig í svona skefti eins og er á fyrstu myndinni á tikkuna mína sem er Tikka T3 huter 243win. eru einhverjir sem eru hér heima að síða svona? hvað myndi það kosta Ca ef þið vitið það þar að segja?