Page 1 of 1
Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 29 Oct 2012 09:02
by E.Har

Ég Ívar Erlends og Mikki kapteinn vorum á veiðum á Holtavörðuheiðinni.
Þegar ég skilaði mér í bíl við mastrið þá var búið að stela rjúpum!
Einhver snillingur hafði troðið sér inn í pallhýsið á hilux og stolið af mér rjúpum.
Ekki tók betra við þegar við sóttum Ívar niður við Fornahvamm. Þar var búið að stinga á öll 4 dekkin á kerrunni hans.
Þvílíkir skíthælar og grjónapungar.
Velti fyrir mér hvort fleirri hafi lent í þessu eða hvort við sérum skotmark, t.d vegna vinnu fyrir Skotvís eða almennt útivistarfólk!
Ef einhver hefur upplisingar þá vil ég mail einarh(hja)fastrik.is eða sími 860 99 55
það hlýtur einhver að vita einhvað!
Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 29 Oct 2012 09:41
by Tf-Óli
Sæll.
Þetta er hrollvekjandi lestur hjá þér Einar.
Ég mæli með að þú talir við lögguna í Borgarnesi. Þar eru fínir kallar sem ég hef trú á að sýni málstað veiðimanna skilning.
Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 29 Oct 2012 11:12
by E.Har
Þakka bara fyrir að þa'ð var ekki meiru stolið.
Á pallinum var taska með veiðidóti.
Búr með hundi.
Í bílnum var svo tvíhleypa ofl!
Skitapakk!

Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 29 Oct 2012 12:11
by Spíri
Það er nú heldur lítil reisn yfir því að hafa stolna rjúpu í jóla matinn, er öll sjálfsvirðing farin hjá svona fíflum?
Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 29 Oct 2012 12:18
by Veiðimeistarinn
Hræfinnur aldavinur minn kenndi mér fyrir margt löngu að við eigum að fyrirgefa óvinum okkar
,,Fyrirgefum þeim því þeir vita eigi hvað þeir gjöra"

Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 29 Oct 2012 13:04
by E.Har
Siggi var það ekki Jesú sem tók svo til orða en ekki Hræfinnur!
Ef einhver er ósáttur við mig eða Ívar þá finnst mér nú skárra að heyra frá þeim en að menn séu að níðast á dauðum hlutum!
P.S sjáið þið ekki mikkla veiðimannin koma heim í gær .... sko elskan ég náði rjúpu í jólamatinn!
Eymingjar!
Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 29 Oct 2012 13:21
by Veiðimeistarinn
Jú Einar, eitthvað tæpti Hræfinnur vinur á því að hann hefði þetta eftir Jesu, enda hafði Hræfinnur oft og ætíð á takteinum spakmæli sem hann hafði eftir Jesu, sem hann hafði lesið í hinni helgu bók
Þó við fyrirgefum þeim það sem þeir gjörðu, réttlætir það á engan hátt gjörðir þessarra manna eða kvenna, þeir munu þurfa að svara fyrir þetta á æðsta degi, þó ekki náist að koma yfir þá höndum í þessum okkar veraldlega heimi

Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 29 Oct 2012 13:38
by E.Har
Get alveg fyrirgefið rjúppnaþjófnað.
Hef tekið að mér svoleiðis aumingjahjálp áður
Þó ef ég næði í skottið á kvikindinu þá myndi ég hýrudraga það!
Hitt er verra að eyðileggja 4 dekk!
Engin húmor í því. Hleypa úr eða hrekkja en svone eignaspjöll verða ekki fyrirgefin!
Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 30 Oct 2012 00:22
by Veiðimeistarinn
Einar, það var gott hjá þér að koma þessu á framfæri!
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... olamatinn/
Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 30 Oct 2012 10:43
by E.Har
Hef ekki nokkrar áhuggjur af rjúpuþjófnaði.
Fúll út í kerruskemdir.
Áhyggjufullur um hverskonar asnar eru að þvælast í kringum bílana okkar.
Við vitum flestir hér hvernig viðviljum ganga frá okkar búnaði á fjöllum.
Getum við ekki lengur geymt neitt í bílunum okkar á veiðislóð!
Vil ná í þessa gæja og ræða aðeins við þá.
það er einhvað farið að hvisast út hvaða snillingar þetta eru.
Kannski næst númerið á vefmyndavél vegagerðarinnar.
Allavega ef einhver veit einhvað þá smellið á mig línu.
Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 30 Oct 2012 17:38
by Padrone
á ekki að kasta á þá "sjómannakveðju" -Árni Johnsen
Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 30 Oct 2012 18:19
by skepnan
Ég get látið þá moka skít og hornskella hrúta svona í refsingarskyni
Kveðja Keli
Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 30 Oct 2012 20:50
by Padrone
Væri til í að prufa hornskella hrút... aldrei pufað það og veit ekki hvað það er. En að moka skít er bara góð líkamsrækt, rétt eins og að moka skurði og öll almenn líkamleg vinna.
Fæ ég að prufa þetta einhvertíman hjá þér?

Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 30 Oct 2012 23:10
by skepnan
Sæll Árni, það að hornskella hrút er þegar hornin á þeim eru of kröpp og stefna inn í hausinn, yfirleitt kjálkann, eða koma of nærri kjálkanum og nuddast við. Þá þarf að saga hornin í sundur fyrir ofan svæðið. Stundum er það inn í kviku og verður sérlega geðslekt með blóði og lykt af sviðnu horni og jafnvel ef vel tekst til þá hefur hornið náð í kjammann yfir sumarið og komin ígerð

Það er best
Svo eins og þú getur ímyndað þér, þá eru blessaðir trukkarnir ekki ánægðir með þessa meðhöndlun og úr verður heljarinnar tusk

enda geta þessar elskur orðið ansi þungar

Skítmokstur er náttúrulega bara ágætis líkamsrækt fyrir þá sem vanir eru en fyrir óvana getur lyktin orðið heldur stæk og fyrir sérstaka "gesti" eins og þessa pörupilta er hægt að auka upplifunina með því að bleyta vel í
En þú ert velkominn í sveitarómantíkina einhverntíman, alltaf gaman að góðum gestum
Kveðja Keli
Re: Þjófar og runpulýður, stálu rjúpum og stungu á dekk!
Posted: 31 Oct 2012 16:32
by Padrone
Ætti að þekka skapgerðina í hrútunum enda hrútur sjálfur.
Ég kíki á þig við tækifæri og prufa að skella einum.
notaru handsög eða slíiprokk?