Page 1 of 1
og enn spyr sá er ekki veit!
Posted: 31 Oct 2012 11:47
by Gunnar Óli
hvað eru þessar upplýsingar að segja mér
Exit Pupil 8.3-2.0mm
Field of View (ft@100yds/m@100m) 15/5@6x, 4.2/1.4@24x
Eye Relief 3.5 inch
Re: og enn spyr sá er ekki veit!
Posted: 31 Oct 2012 11:58
by reynirh
Field of View er sjónsviðið á 100 jördum eða metrum á 6x stækkun er sjónsviðið 15.feteða 5 metrar á 24x stækkun er það 4,2 fet eða 1,4 metrar.
Eye Relief 3.5 inch er fjarlægðin sem á að hafa frá auga að sjónauka.
Re: og enn spyr sá er ekki veit!
Posted: 31 Oct 2012 12:05
by Stebbi Sniper
Exit Pupil: Er reiknað út frá linsustærð og stækkun. Linsustærð / stækkun = Exit Pupil
Sjónauki sem er 50 mm linsa / 7 x stækkun er með 7,14 mm Exit pupil. Þetta er breytilegt svið ef þú ert með sjónauka með breytilegri stækkun. Því hærri sem þessi tala er því bjartari er sjónaukinn. Þetta segir manni að ef þú ZOOM ar á meiri stækkun þá minnkar þessi tala og sjónaukinn verður verri við léleg birtu skilirði. Þó er fleira sem hefur áhrif á það hversu bjartur sjónaukinn er s.s. húðun glerjana og fleira.
Reynir svaraði hinu á meðan ég var að skrifa þetta...
Re: og enn spyr sá er ekki veit!
Posted: 31 Oct 2012 12:10
by Gunnar Óli
takk fyrir þetta...
Re: og enn spyr sá er ekki veit!
Posted: 31 Oct 2012 12:24
by Gunnar Óli
svona til gamans! mynduð þið kaupa þennan sjónauka miðað við aðeins þessar upplýsingar á 55.000kr
Magnification 6-24x
Objective Lens 50mm
Waterproof Yes
Fogproof Yes
Reticle Mil Dot
Exit Pupil 8.3-2.0mm
Optical Coating Multi Coated
Field of View (ft@100yds/m@100m) 15/5@6x, 4.2/1.4@24x
Eye Relief 3.5 inch
Click Value 1/8"
Adjustment Knob Obj. parallax adj., adj. windage and elevation
Tube Diameter 1 inch
Finish Black Matte
Weight 21.98 oz.
Length 16.42 inch
Included Accessories Scope Caps and Lens Cloth
Warranty Limited Lifetime Warranty
Re: og enn spyr sá er ekki veit!
Posted: 31 Oct 2012 13:56
by 257wby
Sæll Gunnar Óli.
Ég myndi persónulega aldrei kaupa sjónauka nema vita hvað hann heitir,sama hvað spekka menn geta talið upp.
Lágmarks krafa fyrir kaupandann að geta gúgglað gripinn og séð "review" um hann....og auðvitað lang best ef hægt er skoða og prófa.
Hellingur af lág-gæðadóti á markaðnum sem lítur vel út á pappír en þegar maður reynir að horfa í gegnum viðkomandi sjónauka þá er fókus lélegur á öllum styrkleikum,stillingar geta líka verið ónákvæmar o.fl. o.fl.
Kv.
Guðmann
Re: og enn spyr sá er ekki veit!
Posted: 31 Oct 2012 19:56
by E.Har
Neibb tommu tuba og soldið þröngur.
Kannski á 222 223 eða einhvað svoleiðis!
Samt kannski .......
Vil bara vita meira enda sjónaukafikill!
Re: og enn spyr sá er ekki veit!
Posted: 31 Oct 2012 20:53
by Gunnar Óli
Sælir

þetta er barska sjónauki sem ég er með á 22-250. Ég er mjög sáttur með hann..... (24.500kr)