Page 1 of 1
Þrif á skotvopnum.
Posted: 03 Nov 2012 22:17
by dain
Nú þarf maður að þrífa nýja riffilinn en spurningin er hver er best (og rétta) leiðin til að gera það?
Keypti Remington þrifkit hjá Ellingsen og Remington Bore Brite en þarf væntanlega e-h olíu, svo ég spyr, hvað vantar mig aukalega?
Re: Þrif á skotvopnum.
Posted: 03 Nov 2012 22:25
by Bc3
Re: Þrif á skotvopnum.
Posted: 04 Nov 2012 00:19
by Veiðimeistarinn
Sæll Daníel.
Ég var einmitt með þessa sömu spurningu síðasta sumar, og fėkk þá þessi svör
http://spjall.skyttur.is/skotvopn/thrif ... -t288.html
Re: Þrif á skotvopnum.
Posted: 04 Nov 2012 00:31
by Bc3
Kemur náttúrlega eftir því hvort hann er með 22lr eða stærra uppá kopar og annað. Bara muna nota bore guide svo þú rústir ekki hlaupinu

Re: Þrif á skotvopnum.
Posted: 04 Nov 2012 00:32
by Bc3
Sé núna i öðrum þráði að hann er með 22lr

Re: Þrif á skotvopnum.
Posted: 04 Nov 2012 17:34
by dain
Þakka ykkur fyrir snögg og góð svör!
Bc3 wrote:Kemur náttúrlega eftir því hvort hann er með 22lr eða stærra uppá kopar og annað. Bara muna nota bore guide svo þú rústir ekki hlaupinu

Sem nýgræðingur þá veit ég ekki alveg hvað þú átt við, bore guide olía til að smyrja hlaupið þá?
Re: Þrif á skotvopnum.
Posted: 04 Nov 2012 18:27
by Aflabrestur
Sælir.
Bore guide er stýring eða plasthólkur með gati í gegn sem er festur í staðinn fyrir boltan til að stýra hreinsistönginni gegnum láshúsið þannig að hún skemmi ekki hlaupið, eða stöngin skemmist sjálf.
Re: Þrif á skotvopnum.
Posted: 04 Nov 2012 20:58
by skepnan
Sæll Daníel, til lukku með nýja gripinn. Bore guide eða "hlaupstýring" er notuð til að vernda hlaupið og láshúsið þegar þrifið er og stýrir hreinsistönginni rétta leið inn í hlaupið.
Hérna er dæmi um bore guide:
http://www.vesturrost.is/?p=2040
eða svona aðeins meira:
http://www.vesturrost.is/?p=2042
Skoðaðu myndbandið um þessa vöru og þá sérð þú hvernig þetta er notað
Það er hægt að fá bore guide hjá flestum ef ekki öllum skotveiðiverslunum.
Svo er ekki úr vegi að renna augum yfir þetta, það gefur líka hugmynd um hvernig menn þrífa sína riffla:
http://www.rifle-accuracy-reports.com/b ... ak-in.html
Skoðaðu síðuna alla, fullt af hlutum til að velta fyrir sér og spá í betur
Kveðja Keli
P.S Þetta ætti auðvitað að vera kennt á skotvopnanámskeiðinu svo að menn hefðu einhvern grunn til að byggja á.
Re: Þrif á skotvopnum.
Posted: 04 Nov 2012 21:03
by Benni
Var mikið að spá í þrifum á .22lr um daginn og skv Ed shilen (sá sem framleiðir Shilen hlaupinn)eru nærri öll .22lr hlaup eyðilögð útaf alltof alltof miklum þrifum og man hann ekki eftir að hafa skipt út hlaupi sem var útskotið.
Ég ætla að fara eftir einni bestu Rimfire skyttu Bandaríkjana en hann segist þrífa hlaupið þegar það er nýtt og svo á 5000 skota fresti og alls ekki fyrr en nákvæmnin fer að dala eitthvað.
Remington gerði einusinni tilraun með hversu lengi rimfire hlaup héldi nákvæmni og eftir 200000 skot nenntu þeir því ekki lengur
Spurning svosem hvað þeir telja ásættanlega nákvæmni?
Svo getur rimfire riffill verið lengi að verða jafn góður eftir þrif því flestir skjóta betur þegar næjanleg feiti er komin í hlaupið aftur, getur tekið jafnvel 100-200 skot þartil hann er orðinn góður aftur.
Re: Þrif á skotvopnum.
Posted: 05 Nov 2012 15:49
by dain
Hah! Athyglisvert! Keypti allavega stadíf í dag þar sem maður getur fest rifflinnn -
þessi hér.
Eini bömmerinn er að það virka ekki hvaða bore guide sem er fyrir riffilinn og þarf ég líklegast að láta sér smíða hann og get þá loksins þrifið hann almennilega.
