Page 1 of 1

Nýji vinur minn - Sako Quad Synthetic

Posted: 07 Nov 2012 19:08
by dain
Svo ég verslaði mér minn fyrsta riffil um daginn - Sako Quad Synthetic varð fyrir valinu.

Image

Hann er beint úr kassanum.. frábær. Gikkurinn er ólýsanlega þæginlegur.

Hægt er að skipta um hlaup og koma þá fjögur caliber til greina.
- .17 HMR
- .17 Mach II
- .22 LR
- .22 WMR

.17 HMR og .22 LR nota sama magasínið.

Er með á honum Hawke 3-9x40 og Harris Tvífótur S-BR.

Re: Nýji vinur minn - Sako Quad Synthetic

Posted: 07 Nov 2012 19:36
by Spíri
Til lukku með flottan riffil :D má ég spyrja hver verðmiðinn er á svona verkfæri?

Re: Nýji vinur minn - Sako Quad Synthetic

Posted: 07 Nov 2012 20:48
by 257wby
Til hamingju með gripinn :)

Kv.
Guðmann

Re: Nýji vinur minn - Sako Quad Synthetic

Posted: 08 Nov 2012 04:08
by dain
Spíri wrote:Til lukku með flottan riffil :D má ég spyrja hver verðmiðinn er á svona verkfæri?
Þú verður að spyrja Ellingsen - ég þori ekki að kíkja á heimabankann.
257wby wrote:Til hamingju með gripinn :)

Kv.
Guðmann
Takk fyrir. ;)

Re: Nýji vinur minn - Sako Quad Synthetic

Posted: 10 Nov 2012 07:31
by Siggi Kári
Þú verður ekki svikinn af þessum, mjög nákvæmir. Ég var ekki búin að prófa mikið af skotum í minn en samt einhverja pakka af hinu og þessu, bezt fannst mér Lapua og SK og það bezta er að hann virðist ekki vera verri með ódýru skotum ss Lapua standard plus og SK magazine.

Kv Siggi Kári

Re: Nýji vinur minn - Sako Quad Synthetic

Posted: 10 Nov 2012 11:30
by Veiðimeistarinn
Siggi Kári, ekki feiminn, fullt nafn í fasta kveðju mannstu :lol:

Re: Nýji vinur minn - Sako Quad Synthetic

Posted: 10 Nov 2012 20:39
by Siggi Kári
Sæll nafni, þetta á að vera komið.

Re: Nýji vinur minn - Sako Quad Synthetic

Posted: 10 Nov 2012 21:29
by Veiðimeistarinn
Alltaf lang flottastur nafni, eins og við erum jú jafnan hér eystra :D

Re: Nýji vinur minn - Sako Quad Synthetic

Posted: 11 Nov 2012 10:00
by T.K.
Þessu tengt- í hvað hafa menn verið að nota 17HMR. Hefur einhver náð góðum árangri?