Þarna er því kominn sterkur kostir fyrir löng færi þar sem bakslagið er líka þokkalega létt. Með 180 graina Berger VLD með .659 BC á 2900 til 3000 fps er þetta orðið ansi öflugt en samt ekki of mikill þrystingur að baki né of mikið bakslag og mjög áhugaverður kostur á móti 6,5x284 sem dæmi eða öðrum stærri magnum kaliberum. Ekki þarf nema um 55 grain af góðu púðri eins og Reloader 17 eða N560 til að ná þessum hraða án þess að þrystingurinn sé mikið meiri en í orginal .284 Win.
Munurinn á þessu og orginal hylkinu er að þetta tekur 3,3 grainum meira púður hylkið er aðeins víðara. Hægt er að nota 6,5x284 hylki frá Lapua eða Norma til að búað þessi hylki til enda þau yfirleitt notuð af þeim sem skjóta .284 Win.
Góð grein um þetta kaliber hér




Svo er hellings fróðleikur um orginal .284 Win(7mm) hér