Page 1 of 1
17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 11 Nov 2012 18:22
by T.K.
Mig langaði að splæsa í sér þráð varðandi þessa spurningu, er eitthvað varið í 17HMR? Ég hef spurt einn eða tvo og ekki verið neinu nær enda höfðu þeir ekki reynslu sjálfir af caliberinu.
En hvað segja Skyttur? Í hvað nýtist 17HMR?
Re: 17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 11 Nov 2012 20:04
by Gisminn
Sæll ég mæli eindregið með þessu cal búin að eiga nokkra og er svo með einn stóran með.
Ég notaði mína aðalega til að skjóta gæs á 70-140 metrum en ég drap samt ýmislegt annað með honum.
Kostir.
Nákvæmir
Kúlurnar eru að framkvæma snögga aflífun en með lágmarks kjötskemdum.
Þeir slá ekkert
Það heyrist mikið minna í þeim en stóru caliberunum en hærra samt en 22LR
Það skiptir litlu í sambandi við fall hvaða þyngd eða gerð af kúlum þú notar.
Gallar.
Það er mjög erfitt að átta sig á hliðarrekinu í 6 metrum eða meira því kúlan rekur mikið því hún er svo létt.
Re: 17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 11 Nov 2012 20:45
by T.K.
Takk fyrir það, athyglisvert.
17HMR er sumsé nytsamlegur - þessa 2 daga á ári sem er logn á klakanum

Re: 17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 11 Nov 2012 21:06
by Gisminn
Hahaha nei líka beint á móti og svo beint aftan á mann

Re: 17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 29 Nov 2012 18:51
by T.K.
Jæja, vindurinn datt niður svo ég ákvað að skjóta inn CZ riffilinn í 17HMR. Búið að eyða smá pening í að pimpa tækið upp síðan ég fékk hann. Góðar sjónaukafestingar, beddun, Sigtron 3-10x50 sjónauki, harris tvífótur og smá camo vafningur til að verja skeptið og hlaupið.
Auðvelt var að skjóta inn, notaði 20gr CCI skot og færið var 50m liggjandi.
Nema hvað, náði líka þessari flottu grúppu, 3 skot og eitt gat!
Vildi ekki skjóta 5 skotum því þá hefði ég "skemmt" þessa grúppu.
Asskoti er þetta orðin þjétt græja. Verður fínt að lofa unglingnum á heimilinu að æfa sig með þessu. Nú er bara spurning hvort þetta er nothæft á 150metra og yfir?

Re: 17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 29 Nov 2012 19:00
by Veiðimeistarinn
Ertu viss um að öll skotin þrjú hafi hitt á blaðið

Re: 17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 29 Nov 2012 19:08
by T.K.
Ég hugsaði það sama og margtjékkaði. Nógu viss til að þora pósta þessu til ykkar

Re: 17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 29 Nov 2012 19:52
by Gisminn
Flottur

ég er með reynslu að 140 metrum á gæs og þær steinlágu
Re: 17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 29 Nov 2012 21:00
by maggragg
Einn punktur í viðbót. 17. HMR ekki heimilt í neinn skotgrein. Ef ekki á að keppa í skotfimi skiptir þetta ekki máli.
En til hamingju með græjuna. Væri allveg til í einn svona einhverntíman

Re: 17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 29 Nov 2012 23:53
by Veiðimeistarinn
Jú, þeir leyfa 17 hmr í rimfire keppnunum hjá SKAUST.
Re: 17 HMR - er eitthvað vit í því?
Posted: 30 Nov 2012 08:54
by maggragg
Já það er flott, þetta kom kannski svolítið vitlaust út hjá mér. 17. HMR er ekki leyfður í þessum viðurkenndu greinum hér á landi í dag, þ.e. silhouettu og ISSF greinunum. En öllum félögum er jú heimilt að efna til sinna skotkeppna með sínum reglum og gott að þeir eru ekki úti í keppnum
