Page 1 of 1

smá breytingar!!

Posted: 12 Nov 2012 13:13
by Gunnar Óli
sælir/sælar

ég er að smíða mér kubb til að hækka skepti (undir kinnbein) en langar að vita hvort menn/konur séu að leggja kinnbein mjög þétt að skepti eða bara svona létt?

er ekki málið að leggja höfuðið þannig að það liggji nokkuð vel að til að losna við alla spennu í hálsi (hálsvöðva)

Re: smá breytingar!!

Posted: 12 Nov 2012 15:26
by maggragg
Læt kinnbeinið hvíla allveg á skeptiskubbnum. Á að vera þannig að þegar maður leggst á kubbinn hefur maður sjónsviðið rétt í sjónaukanum.

Re: smá breytingar!!

Posted: 12 Nov 2012 17:37
by Gunnar Óli
takk fyrir þetta... grunaði þetta í sjálfu sér en langaði að vera viss hvernig menn væru með þetta!

Re: smá breytingar!!

Posted: 12 Nov 2012 20:55
by Dr.Gæsavængur
Sæll Gunnar Óli.

Þú mátt endilega setja inn myndir af verkinu þegar þú ert búinn, eða senda mér sem mail ásamt stuttri verklýsingu. Ég er að hugsa um að gera þetta sjálfur við minn riffil, hann er með hnotuskepti og frekar stóran sjónauka svo smá hækkun væri fín. Er að hugsa hvernig best væri ad standa að þessuu :)

Gangi þér vel. kv.

Re: smá breytingar!!

Posted: 12 Nov 2012 21:37
by Gunnar Óli
Sæll

þar sem að þetta var algjör skyndihugdetta í morgun þá er þetta ennþá á hugmyndastigi!!

gerði að vísu svona prufukubb sem ég ætla að prufa að nota næst þegar ég fer á svæðið (þegar snjórinn lætur undan).

fagurfræðileg gildi voru nú ekki mér efst í huga við þessa smíði enda bara til að prufa.. langar í framtíðinni að smíða mér alveg nýtt skepti. Þá var hugsunin að hafa hann rétthendis fyrir "vitlausthenta" þ.e.a.s riffillinn er fyrir rétthenta en langar að hafa grip fyrir örfhenta og stillanlegan "kinnpúða"

hér eru myndir að verknaðinum....
kubbur.jpg
kubbur2.jpg
kubbur 3.jpg