Page 1 of 1
Jahti jakt veiðifatnaðurinn
Posted: 12 Nov 2012 17:18
by Gisminn
Sælir ég er að leita að upplýsingum hvort það sé bara Veiðibúðin á Akranesi sem er með þennan fatnað.
Mér sýnist þetta séu hlýar vörur og henta vel til þeirra sem eru mikið á hreifingu.
Re: Jahti jakt veiðivatnaðurinn
Posted: 12 Nov 2012 18:01
by maggragg
Er með svona, og búin að eiga í einhver 5 ár. Þetta er snilld og hentar fyrir það sem ég geri. Þetta er lagskiptur klæðnaður. þ.e. að jakkinn er tildæmis ekki fóðraður, heldur klæðir maður sig í lög undir eftir því hvað maður gerir. Hentar bæði í göngu og svo að sitja fyrir í skurðum o.s.f.v. Þetta á eftir að duga mér einhver ár í viðbót. Keypti svona pakka hjá Icefin á sínum tíma.
Re: Jahti jakt veiðivatnaðurinn
Posted: 12 Nov 2012 19:19
by Gisminn
Það er málið icefin síðan virðist vera niðri ég fæ forsíðu stundum en ekki meira.Og hjá veiðibúðini eru þeir bara með fleespeysuna þó mig langi líka í hana en konuni finnst hún svakalega ljót

Re: Jahti jakt veiðifatnaðurinn
Posted: 12 Nov 2012 20:45
by Dr.Gæsavængur
Ég sá mikið úrval af þessum klæðnaði í veiðibúðum í Noregi. Hann er flottur og vandaður, klassíst útlit. verðmiðinn var bara svo hár að maður lét duga að skoða. Mér fannst þetta samt kanski meira vera svona fatnaður fyrir skógarveiði, svona ekta skandinaviu veiði. Ég hugsaði að þetta mynda henta vel í hreindýr og þess háttar hérna, en ég hef ekki reynsluna einsog hann Magnús af fötunum við íslenskar aðstæður.
Hérna er t.d. ein síða sem sýnir eh..
http://www.abcfritid.no/kategori/jaktdresser
Re: Jahti jakt veiðifatnaðurinn
Posted: 12 Nov 2012 21:20
by egill_masson
Ég hef notað þennan fatnað í allt - hreindýr, gæs og rjúpu, og þetta eru alveg frábær föt. Virkar líka á sumrin. Búinn að eiga í ca. 6 ár.
Re: Jahti jakt veiðifatnaðurinn
Posted: 12 Nov 2012 21:43
by Þ.B.B.
Sæll, ég er að notast við Jahti Jakt, líklega samskonar föt og Magnús, stakar buxur og jakki við í öndunarefni, frábær fatnaður í mikið labb.
Hef tvisvar farið í þessu á hreindýr og í marga gæsatúra, er líka með þykka flíspeysu frá þeim sem ég nota á rjúpu.
Ég hef aldrey lent í slagveðri í þessum fatnaði og veit því ekki kversu vatnshelt þetta er við verstu aðstæður en í smáskúrum, skríðandi í blautu grasi og þessháttar helst maður alveg þurr.
Þorsteinn Bjarnarson.