Page 1 of 1
að meta færi (haglabyssa)
Posted: 13 Nov 2012 20:13
by Gunnar Óli
sælir/sælar
langaði að segja frá einni aðferð til að læra að meta haglabyssufæri!!
ég hef ekki prufað þetta sjálfur en þekki þó einn sem hefur prufað þetta með góðum árangri!
takið flugdreka og merkið spottann með 5 eða 10 metra millibili (eða því millibili sem hver og einn kýs)
og svo er farið út (skemmir ekki ef það er vindur;)) flugdrekanum flogið og færin metin..
sá er sagði mér frá þessu talaði um að þetta munaði miklu þegar hann fór svo í gæsir eftir að hafa gert þetta nokkrum sinnum og var hann fljótt farinn að getað sagt fjarlægðina á færinu þó svo að annar (sonur hans) væri með drekan..
væri gaman að heyra fleiri "húsráð" frá mönnum um hitt og þetta!!

- aðeins of stutt :/
- upps.jpg (298.89 KiB) Viewed 1829 times
Re: að meta færi (haglabyssa)
Posted: 13 Nov 2012 20:51
by Gisminn
Þetta er sniðugt ráð ég á það til að vera fjarlægðarblindur á styttri færum 30-100 metrum og ég nota indiána aðferðina ég tek ekki skot á gæs eða önd nema ég sjái vel augun þá er hún í 30-40 metrum.Nota Rio 42gramma númer 5 og svo númer 3 þegar líður á haustið.
Re: að meta færi (haglabyssa)
Posted: 13 Nov 2012 21:29
by Gunnar Óli
sælir aftur
gleymdi að nefna að flugdrekinn verður helst að vera svipaður að stærð og bráðin sem á að veiða (veit ekki hversu smá flugdreka hægt er að fá)..
indjána aðferðin

ekki vitlaust að temja sér slíkt
Re: að meta færi (haglabyssa)
Posted: 14 Nov 2012 07:43
by 257wby
Þetta er góð hugmynd, ótrúlega margir eiga í erfiðleikum með að meta fjarlægðir.Ég hef hitt menn sem telja sig skjóta gæsir á 50-60m færum en svo þegar ég fer með þá á pall 1 á skeet vellinum og segi þeim að það séu tæpir 40 metrar yfir í mark skúrinn þá renna nú oft á þá 2 til 3 grímur
Þegar ég er á veiðum þá reyni ég að finna einhvern punkt sem er á ystu mörkum þess færis sem ég treysti mér til að skjóta á,getur verið girðingarstaur eða eitthvað í þeim dúrnum .
Kv.
Guðmann
Re: að meta færi (haglabyssa)
Posted: 14 Nov 2012 13:56
by skepnan
Sælir, svo er hægt að hafa eina gerfigæs á sirka 30-35 metrum og hafa hana jafnvel staka frá hópnum enda er það alvanalegt hjá gæsahópum að gamlar gæsir séu í "útverði". Þá er hægt að meta vel fjarlægðina. En ég er líka svona "indíáni" eins og Steini og vil sjá augun, þá er ég sáttur. Vona bara að ég verði ekki nærsýnn með aldrinum, það gæti endað illa
Kveðja Keli
Re: að meta færi (haglabyssa)
Posted: 14 Nov 2012 14:11
by Gunnar Óli
já vissulega er gott að vera með á hreinu hve langt er í t.d. ystu gervigæs eða hafa eina staka einhversstaðar! en fyrir mig þá finnst mér auðveldara að meta fjarlægð á jörðu en á flugi og þar gæti drekinn hjálpað mér!!
en alltaf gott að venja sig á að skjóta ekki í vafa-færi..
Re: að meta færi (haglabyssa)
Posted: 14 Nov 2012 14:29
by skepnan
Sæll Gunnar, ef þú hefur "fjarlægðar gæsina" í aðflugslínu þá er auðveldara að átta sig á því hvenær flugið flaug inn fyrir fjarlægðarlínuna "and you can open fire"
Kveðja Keli