Page 1 of 1
Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 11:41
by T.K.
Hér eru uppáhalds leikföng barnanna minna - um þessar mundir. Sumt er keypt, annað smíðuðu þeir sjálfir. Þetta er sú kynslóð sem mun erfa landið og vonandi skila góðu af sér. Og já, þetta eru strákar.
Re: Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 11:57
by Veiðimeistarinn
Re: Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 12:50
by Stebbi Sniper
Er þetta AK-47 þarna efst á myndinni til hægri... Veit Ögmundur af þessu?

Re: Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 13:14
by T.K.
Hef meiri áhyggjur af frúnni, þegar hún sér hvernig farið er með gúmmí hanskana.
Re: Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 13:28
by Stebbi Sniper
Já það er satt... það borgar sig ekki að kalla yfir sig reiði frúarinnar! Við bræður pössuðum okkur alltaf á því að taka hægri hanskann frá gömlu. Þetta réttlættum við með því að það þyrfti ekki hanska á hendina sem heldur á uppþvottaburstanum.

Hún lék á okkur með því að kaupa næst svona fóðraða uppþvottahanska sem tegjast ekki eins vel.
Við reyndar kölluðum svo aftur yfir okkur reiði föður okkar þegar við urðum okkur út um skotfæri sem var aðeins meira púður í en hálfbaunum...

Fiktið slapp þó stórslysa laust hjá okkur en það var ekki alltaf okkur að þakka...
Re: Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 17:32
by Tf-Óli
Þennan veturinn geng ég til rjúpna með syni mínum.
Hann fær leiðbeiningar og kennslu hjá mér alveg eins og pabbi minn og afar mínir leiðbeindu mér.
Ekki leiðinlegt að veiða með stráknum get ég sagt ykkur.
Re: Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 18:30
by Gisminn
Flottir feðgar.
Re: Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 18:53
by Veiðimeistarinn
Hvenær kemur hann með þér á hreindýraveiðarnar Óli?
Verða kannski þrír ættliðir næst, það hefur einu sinni gerst hjá mér áður.
Re: Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 21:25
by Tf-Óli
Það væri gaman að koma allir þrír næst Sigurður. Sá litli er sterkur göngumaður svo að ég held að hann myndi ráða við það.
Verð að senda á þig myndir af rifflinum eftir breytingar. Jói vinur okkar beddaði hann í varmint skefti og ég var að setja á hann Meopta 6-18x50. Lúkkar helvíti vel og fyrstu prufur lofa góðu.
Re: Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 23:33
by Gunnar Óli
Sælir/sælar
gaman af þessu!!
læt fylgja hvernig mínu uppeldi er háttað
er að vinna í því að smita konuna og gengur furðu vel með skytteríið en hægar með stöngina

- Frumburðurinn

- Dýrið
Re: Komandi kynslóðir
Posted: 21 Nov 2012 23:54
by Gisminn
Hehehe minn er að prófa sig áfram í hundaþjálfun

Re: Komandi kynslóðir
Posted: 22 Nov 2012 07:49
by Veiðimeistarinn
Óli, þú segir ,,sá litli", mér sýnist á myndinni að hann sé síst minni en pabbinn

Re: Komandi kynslóðir
Posted: 23 Nov 2012 08:51
by maggragg
Gunnar Óli, Hvar færðu svona fínar vöðlur á krakka. Vantar svona handa mínum

Re: Komandi kynslóðir
Posted: 23 Nov 2012 09:58
by Gunnar Óli
sælir/sælar
ég keypti þessar vöðlur hjá Hjalla í Hlað.
þetta eru "konuvöðlur" eins og Hjalli orðaði það.
mig minnir að hann hafi átt eitthvað af þessum vöðlum.
Re: Komandi kynslóðir
Posted: 11 Dec 2012 18:06
by maggragg
Verið að kenna ungviðinu hvernig maturinn verður til og leyfa þeim að taka þátt en áhugann vantar ekki
