Page 1 of 1

Prófkjör ..........

Posted: 22 Nov 2012 12:09
by E.Har
Núna er prófkjörstími í gangi.
Við veiðimenn og útivistarfólk verðum að standa saman og styðja við bakið á okkar fólki.
Mér er fjandanns sama hvað menn kjósa í kosningum en í prófkjörum eigum við að styðja við útivistarfólk.

Ég mun kjósa Guðlaug Þór í 2. sætið í rvk.
Hann hefur einfaldlega borið haus og herðar yfir aðra í umræðu um útivist og veiðar.

Hverja aðra á að styðja og hvar?

Re: Prófkjör ..........

Posted: 22 Nov 2012 12:31
by Tf-Óli
Og skifta þá engu máli niðurstöður í kærumálum hjá sérstökum saksóknara?
Mútuþægni og og eithvað fleira....

Re: Prófkjör ..........

Posted: 22 Nov 2012 13:25
by E.Har
Nokkuð merkilegt að Andersen sem er fyrir dómi fyrir að fara ólöglega inn á reikninga bæði Guðlaugs Þórs ofl. og leka þeim upplisingum til DV. skuli í sinni vörn kæra Gulla fyrir sölu á þessu tryggingarumboði og því sé lekið í DV á versta hugsanlega tíma fyrir prófkjörið!

Málið er einfalt. Mér finnst vond lýgt af þessari kæru og þessari tímasetningu hjá DV.
Guðlaugur er sá þingmaður sem best hefur staðið með veiði- og útivistarmönnum.

Ef hann verður kærður þá á hann að sjálfsögðu ekki heima á Þingi.
Ef þetta er DV bull þá er því mun meiri ástæða til að halda honum inni!

Re: Prófkjör ..........

Posted: 22 Nov 2012 14:08
by Gisminn
Leiðrétting Einar ! Ef hann verður SAKFELDUR þá á hann að sjálfsögðu ekki heima á Þingi

Re: Prófkjör ..........

Posted: 23 Nov 2012 22:10
by Sveinbjörn
Kæri Einar.
Um stund tókst mér að vera skoðana laus þegar kom að stjórnmálum. Því var einfaldlega sjálf hætt að reyna að skilja og hafa skoðanir á stjórnmálum og því frábæra fólki sem leggur sig í stórhættu fyrir okkur.
Brosir framan í myndavélar eins og drukknar húsmæður sem hafa dottið með eggjabakka í smákökubakstri þegar þing er sett. Nema einn sem taldi sig hafa rotast við að fá egg í höfuðið. Ég velti því fyrir mér hvort innihaldið hafi verið betra og hvað það þarf lítið egg til að slökkva á stórum þingmanni. Það er nokkuð ljóst að það er mun hættulegra að selja egg í matvörubúðum en veiðibyssur.

Húsbréfa Jóga með fulltingi Össurar og flokkeiganda rændi völdum þegar lasin og valdasjúkur formaður Samfó. Sat sem fastast þrátt fyrir að vera óvinnufær vegna veikinda. Rétt kjörinn varaformaður var flæmdur úr landi og í framhaldi var gamla konan klöppuð upp. Þetta heitir valdarán þegar þetta er gert í stjórnmálaflokkum erlendis. En er saman fólkið í aðalhlutverki þar.

Þinn maður í Reykjavíkurkjördæmi er því miður ekki alveg frambærilegur af ýmsum ástæðum þrátt fyrir að hann hafi sem strákur fengið að handleika veiðibyssur á heimili föður síns. Nú eins og við höfum flestir ekki getað gleymt þá bað Geir drottinn um að blessa Ísland. Svo fengum við undarlegan vafning sem Guðlaugur Þór hangir í ásamt meðreiðarsveinum þeirra sem keyrðu landið nánast í þrot.

Nú mín kæra Sif er að hætta og það verður eftir sjá af henni. Hún er veiðikona og vona ég svo sannarlega að samtrygging stjórnmálamanna sjái henni fyrir sendiherra stöðu þar sem loftslag er milt og veiðilendur góðar. Eftir situr Framsóknarflokkur með ýmsar stefnur og fer nú loksins að vera eins og nýhreinsaður hundur. Þar að segja eins og hundur sem var hreinsaður upp á gamla móðinn. Og voru þá þessir bestu vinir mansins oftar en ekki frekar framlágir og aumkunarverðir.

Þá er það bóndasonur af austurlandi og hirð hans sem er best lýst sem framfara hemlum. Að vísu hefur komið og farið úr sauðahjörð VG eins og gengur. Menn reyna að búa sér til málefni og er einn nýliðinn titlaður vinur bænda og Grenjavinnslumanna.
Nái VG fram sínum stefnumálum verð ég tvo tíma á dag í öllum veðrum annað hvort að bíða eftir strætó eða í vindbarning á reiðhjóli á ferlalagi mínu úr og í vinnu. Náttúru perlur verða aðeins aðgengilegar auðmönnum sem hafa tök á því að ferðast um landið á þyrlu. Að ógleymdum þeim fáu Íslendingum sem þurfa ekki að stunda vinnu, gæta barna og vera lausir við daglegt amstur sem fylgir vísitölufjölskildu. Já þessir fáu geta gengið fjöll og friðlönd sér til gleði að því gefnu að þeir séu ófatlaðir og lausir við legsig, gillinæð, fótafúa og að eldast.

Já svo er það Lilja, Bestiflokkurinn, Ómar Ragnarsson sem hefur verðið okkur ansi kostnaðarsamur og sjálfsagt útbrunnir fréttamenn af stöð- sem detta út af þingi. Guðmundur Steingrímsson með nikkuna, Hægri kratar, Leikfimikennarinn sem gekk í krossinn og allir hinir sem ég nenni ekki að muna eftir.
Eftir að hafa látið hugann reika og íhugað þetta góða fólk sem hér eftir sem hingað til hefur fórnað sér fyrir þjóðina. Reiðubúið til að takast á við vanda og vá sem að okkur kann að steðja. þá sé það þjóðinni fyrir bestu að vera laus við Guðlaug Þór. Hvort að við fáum að leika okkur að skammbyssum eða ekki skiptir ekki höfuð máli þegar heildar myndin er skoðuð. Því verður ekki á móti mælt að hann tók til máls þegar okkar ástkæri, óttalausi og alvitri Innanríkisráðherra mælti fyrir frumvarpinu. Ég hafði fyrir því að finna það á vef Alþingis og hlusta á það. Málflutningur okkar ástkæra, óttalausa og alvitra Innanríkisráðherra var eins og lestur af blaði og hef ég heyrt mun skemmtilegri ræður frá okkar ástkæra, óttalausa og alvitra Innanríkisráðherra. Gulli greyið var eins og aumkunarverður krakki í barnaafmæli sem sá nú tækifæri til að láta ljós sitt skína af því að stofan var næstum því tóm og enginn annar vildi tala.

Nú vill ég gjarnan leggja umræður um stjórnmál til hliðar og vonast til þess að aðrir geri það sama á þessum vettvangi. :evil:

Þess í stað get ég glatt ykkur með stórtíðindum úr veiðiheiminum. Þannig er að Stefán Hrafn ferðamálafrömuður og landnemi á óbyggðum svæðum suður Grænlands verður gestur í Ellingsen. Mánudaginn 26 nóv. – Miðvikudaginn 28 nóv. Og Föstudaginn 30 nóv. Stefán Hrafn er staddur tímabundið hér á landi og var það auðsótt af hans hálfu hafa viðveru hjá okkur í Ellingsen þegar eftir því var leitað.

Stefán Hrafn ætlar að sýna okkur myndir, segja veiðisögur og svar fyrir spurnum um allt sem snýr að skot og stangveiði á suður Grænlandi. Það verður kaffi á könnunni og Kóka Kóla fyrir þá sem vilja sitt koffín kalt.
Stefán Hrafn verður í Veiðideild Ellingsen frá því klukkan 16:00 og til 18:00 mánudag, miðvikudag og föstudag í næstu viku.
Nú svo fer að styttast í jólaskapið og ætlum við að vera með áhugaverð tilboð í veiðideild vikunna sem Stefán Hrafn verður með Grænlandsspjall.

Re: Prófkjör ..........

Posted: 23 Nov 2012 22:58
by Gisminn
Vá maður þetta var ræða og ég las hana aftur og svo aftur 8-)
En þetta verður örugglega gaman hjá ykkur.
Ef ég fæ ekki hreindýr næsta haust nýti ég mé gæda afsláttin og fer til grænlands ;)