Page 1 of 1
Er þetta til
Posted: 22 Nov 2012 22:35
by Gisminn
Er þetta til og hægt að setja í hvaða haglabyssu = einhleypu eða tvíhleypu ?
http://www.youtube.com/watch?v=3l4PBOQT ... ure=g-vrec
Re: Er þetta til
Posted: 23 Nov 2012 10:11
by Stefán_Jökull
Þetta er soldið skondið.
Re: Er þetta til
Posted: 23 Nov 2012 10:47
by Veiðimeistarinn
Þetta virðist ekki vera mjög nákvæmt og verður líklega seint notað í Bencrest

Re: Er þetta til
Posted: 23 Nov 2012 10:56
by Gisminn
Já þetta er bæði skondið og áhugavert. Ég sá fyrir mér þetta fína tækifæri að geta gert eins og sigurður með combo byssuna en bara í tvíhleypu fyrir tófuna Haglaskot í öðru hlaupinu og riffilskot í hinu.Haglaskotið á 0-30 metrana og riffilskotið á 30-60 metra. En það er satt nákvæmnin var ekki upp á marga fiska en það vakti aftur hjá mér spurningu sem einhverstaðar kom fyrir áður.
Hvað þarf rifflað hlaup að vera langt til að skila nákvæmni '
Re: Er þetta til
Posted: 23 Nov 2012 11:01
by maggragg
Það þarf ekki að vera mjög langt. Þetta snýst líka um stífleika hlaups og smíði. 20" þungt hlaup er nákvæmara en 26" létt hlaup ef allir aðrir þættir eru eins. Hlaup sem er sett inn í annað verður aldrei nákvæmt en svo er nákvæmni afstætt hugtak. Hvað myndirðu kalla nákvæmni fyrir veiðar með combo byssu?
Re: Er þetta til
Posted: 23 Nov 2012 11:52
by Gisminn
Ég veit það ekki en svona í fljótu bragði þá væri ég ekki að gera meiri kröfur en ca 4-5cm grúbbu með alvöru combo á 100-150 metrum en með svona hólka ævintýri 4-5 á 60 metrum
En ég veit samt ekkert um þetta en oft hugsað um þetta þegar maður var é kofanum og rebbi vildi ekki nær en 50-60 metrum að nú hefði verið gott að hafa riffil.