Page 1 of 1

Rjúpan.

Posted: 27 Nov 2012 09:35
by Spíri

Re: Rjúpan.

Posted: 27 Nov 2012 10:37
by Veiðimeistarinn
Já þetta er gott hjá þér Þorsteinn og í engu ofsagt.
Mér finnst það fyrirkomulag sem Umhvefisráðuneytið og Umhverfisstofnun hafa viðhaft við rjúpnaveiðar undanfarin ár vera arfavitlaust og alveg fullkomlega galið.
Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að rjúpnaveiðitímabilið eigi að vera samfellt og byrja miklu fyrr, til dæmis í september og standa kannski um tvo mánuði, áður en verstu veður fara að láta kræla á sér, þá mundi nást meira af fuglinum sem fer í náttúrulegum afföllum.
Það að láta veiðitímabili rjúpu lokið á Þorláksmessu byggðist á því að erfitt var að geyma fuglinn, ég minna á að sðíðan er búið að finna upp frystikistuna.
Nú er verið að veiða mikið af fuglinum sem lifir af náttúruleg afföll, það er kallað í sveitinni að slátra mjólkurkúnni.
Ég bendi á að veiðitíminn í nóvember og desember eins og hann var til fjölda ára eða alveg frá því ég man eftir mér og nánast út síðustu öld, var ákveðinn tímalega séð vegna útflutnings á rjúpunni en það var skilyrði að rjúpan væri vel hvít þegar hún var flutt út, þess vegna var þessi veiðitími leiddur í lög.
Ég minni á að Dr. Finnur Guðmundsson sem rannsakaði rjúpuna fyrstur íslending á árum áður og komst að þessum náttúulegu sveiflum í rjúpnastofninum, lagði aldrei til rjúpnaveiðibann til að rétta af þessar sveiflur.
Það er uppfinning nýmóðins ráðþrota líffræðingaga sem fundu upp frasann ,,að láta allt njóta vafans", vegna þess að þeir vita sjadnast hvert þeir eru að fara, eigra rammvilltir og ráðþrota um náttúru íslands þar sem friðun er eina svarið sem þeim dettur í hug þegar skinsemina þrýtur til að þeir rati heim.
Ég vil minna menn á bókina Rjúpan eftir Skúla heitinn Magnússon, þar er mikill fróleikur samankominn um rjúpuna og rjúpnaveiðar gegn um árin, virkilega fróðleg bók.
http://landogsaga.is/section.php?id=8721&id_art=8911

Re: Rjúpan.

Posted: 27 Nov 2012 23:17
by Gisminn
Takk strákar og ég sé að Óskar fer hamförum í blogginu :-)