Page 1 of 1
Nýi veiðiriffillinn
Posted: 30 Nov 2012 22:33
by Pálmi
Sælir
Eftir 10 mánaða ferli er hann næstum því tilbúinn, þetta er orginal remington 700 sps í 270 win en er komin í 338 norma mag með "smávægilegum" breytingum er þetta útkoman.Lásin var réttur upp og boltfaceið stækkað og sako úrdragari settur í, Lásin var beddaður í skepti frá GRS, hlaupið er frá Lothar Walter 1-10 tvist og er 24" langt +brake sem Finni smíðaði og svínvirkar, verkfærið vigtar 6,150 kg eins og hann stendur og slær eins og 308.
Re: Nýi veiðiriffillinn
Posted: 01 Dec 2012 00:54
by Gisminn
Fallegur gripur hjá þér og ég er dálítill sukker fyrir þessari áferð á skeptinu

Re: Nýi veiðiriffillinn
Posted: 01 Dec 2012 08:09
by Hjölli
Til hamingju með gripinn hrikalega flottur er þetta ekki fyrsti 338 norma riffilinn
ertu búinn að hraðamæla og hvernig er hann að skjóta
kveðja
Re: Nýi veiðiriffillinn
Posted: 01 Dec 2012 08:39
by Pálmi
Jú þetta er sá fyrsti, það er búið að skjóta 25 skotum og þetta er allt á réttri leið, ég þurfti að byrja frá grunni því það eru engar uppl til fyrir vv púður.
Svo bíð ég eftir símtali frá þér fyrir hraðamælingu
kv
Re: Nýi veiðiriffillinn
Posted: 01 Dec 2012 10:58
by Tf-Óli
Flottur! Þessi breik hjá manninum eru náttúrulega bara snilld.
Re: Nýi veiðiriffillinn
Posted: 01 Dec 2012 11:17
by Gísli Snæ
Glæsilegur riffill Pálmi
Re: Nýi veiðiriffillinn
Posted: 01 Dec 2012 15:55
by Spíri
Sannarlega flottur riffill hjá þér

Kenski ég fari þessa leið með minn remma en ég stend frammi fyrir að velja hlaup á hann, ætlaði að fá mér 300win mag en kanski maður fari alla leið í 338 magnum eitthvað

Re: Nýi veiðiriffillinn
Posted: 02 Dec 2012 11:05
by E.Har
Glæsilegt.
Nuna langar mig i svona

Re: Nýi veiðiriffillinn
Posted: 02 Dec 2012 22:33
by Pálmi
Hleðslan í hann er sennilega fundin
kv
Re: Nýi veiðiriffillinn
Posted: 02 Dec 2012 22:49
by Þ.B.B.
Því verður varla neitað, til hamingju með gripinn.
Re: Nýi veiðiriffillinn
Posted: 03 Dec 2012 09:20
by Spíri
Glæsileg brúbba

hvert var færið?